Skoðun

Á bjargbrúninni

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Samfylkingin er í þröngri stöðu. Jafnaðarmannaflokkurinn sem stefndi að því að verða annar tveggja turna í íslenskri pólitík, er ekki svipur hjá sjón. Fylgið nær varla tíu prósentum í könnunum og fer minnkandi. Erfitt er að finna einfalda skýringu.

Þátttaka í óvinsælli ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms ræður nokkru. Flokkurinn fékk einungis rétt þrettán prósent í kosningunum 2013, tæpum sautján prósentum minna en í kosningunum á undan. Síðan þá hefur hallað undan fæti. En fleira ræður ferð.

Formaðurinn, Árni Páll Árnason, verður að axla ábyrgð á stöðunni. Hann hefur ekki náð að sýna sparihliðarnar. Hann hefur verið laskaður frá fyrstu dögum þegar hann lýsti yfir, í andstöðu við flesta þingmenn og stuðningsmenn, að stjórnarskrármálið yrði ekki klárað fyrir þinglok. Síðan hefur lítið heyrst eða spurst af því máli úr herbúðum Samfylkingarinnar. Fjallað er um málið í enn einni eilífðarnefndinni. Skipbrotið í stjórnarskrármálinu var raunar, eins og Jón Baldvin Hannibalsson benti á, einkennandi fyrir Jóhönnustjórnina. Stærstu málin strönduðu á skeri. Kannski líður formaðurinn og flokkurinn enn fyrir það.

Þá hefur Árni þurft að þola illa ígrundaðar árásir samherja sinna. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir bauð sig fram gegn honum á síðasta landsfundi. Árni vann með minnsta mun og stóð illa særður eftir. Orðspor Sigríðar beið sömuleiðis hnekki vegna þess hvernig staðið var að framboði hennar.

Sigríður, ásamt Helga Hjörvar þingflokksformanni, stóð svo að því að leggja fram frumvarp um afnám verðtryggingar í þinginu. Tillagan var lögð fram í andstöðu við formanninn, og að sögn til að kalla fram afstöðu Framsóknarflokksins í málinu! Raunar var Árni Páll rökfastur í málinu og kom ágætlega út persónulega. Sama var ekki hægt að segja um frumvarpsflytjendur.

Aftur svipaði þingliði Samfylkingarinnar til rökþrota liðsmanna ræðuliðs á framhaldsskólastigi, fremur en stjórnmálaflokks sem stefnir til áhrifa á landsvísu. Varla er hægt að kenna formanninum einum um það.

Þetta er að einhverju leyti ímyndarvandi Samfylkingarinnar. Framvarðasveit flokksins er sundurleit og virðist upptekin af pólitískri leikjafræði fremur en uppbyggilegri umræðu. Stefnumálin eru abstrakt, pólitískt rétthugsuð og fremur sjálfsögð. Það vantar frumlega hugsun og kjöt á beinin. Á meðan fara Píratar með himinskautum.

Erfitt er að sjá að Árni Páll verði langlífur í embætti. Hvað eftirmenn varðar hefur nafn Dags B. Eggertssonar borgarstjóra verið nefnt. Hann hefur hins vegar um nóg að hugsa í borginni, fjárhagsstaðan er þröng og hann hefur oft notið meiri lýðhylli. Helgi Hjörvar er sagður á formannsbuxunum en kom ekki vel út úr verðtryggingarmálinu. Sigríður Ingibjörg hlýtur að hafa endanlega spilað rassinn úr buxunum. Katrín Júlíusdóttir hefur örugglega dug, en spurning hvort hún hafi áhuga eða nennu.

Svo er spurning hvað Össur gerir. Rennur honum blóðið til skyldunnar eða leitar hugurinn suður á Bessastaði?




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×