Innlent

„Ýtnir“ og „frekir“ menn bjóða ýmsa þjónustu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarið borist tilkynningar um „ýtna“ menn sem bjóðast til að vinna ýmis verk fyrir fólk.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarið borist tilkynningar um „ýtna“ menn sem bjóðast til að vinna ýmis verk fyrir fólk. vísir/andri marinó
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur húseigendur til að hafa í huga að undanfarna daga hafa henni borist tilkynningar um nokkra menn sem banka upp á hjá fólki og bjóðast til að vinna ýmis verk fyrir það.

Á Facebook-síðu lögreglunnar segir að mennirnir þyki mjög aðgangsharðir auk þess sem þeir eru sagðir bæði einstaklega ýtnir og frekir. Þeir sem tilkynnt hafa mennina til lögreglu hafa lýst óþægindum vegna samskipta við mennina.

Sjá einnig: Segir fjárglæframenn hafa áreitt aldraða móður hennar

„Einn þeirra sem keypti þjónustu mannanna, sem eru sagðir írskir eða skoskir, sakar þá um vanefndir og hyggst leggja fram kæru. Á meðal verka sem mennirnir bjóðast til að taka að sér er garðvinna, hellulögn og málningarvinna. Húseigendur eru beðnir að hafa þetta í huga ef menn banka upp á og bjóða þjónustu af þessu tagi. Og enn fremur að tilkynna til lögreglu ef slík mál kom upp.“

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarna daga borist tilkynningar um nokkra menn sem bjóða húseigendum ýmsa þjó...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Tuesday, 7 July 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×