Innlent

„Við viljum ekki að svartstakkarnir í flokknum eigi flokkinn meira en ég eða þú“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorgerður Katrín var menntamálaráðherra frá 2003-2009.
Þorgerður Katrín var menntamálaráðherra frá 2003-2009. VISIR/GVA
„Ég held bara að fólki og ekki síst frjálslyndu fólki innan Sjálfstæðisflokksins hafi algjörlega misboðið þessi aðferðarfræði og nálgun því hún er ekki í takti við flokkinn okkar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrum ráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins.

Þorgerður Katrín var einn gesta í Sunnudagsmorgni á Rúv í morgun. Þar ræddi hún um vikuna sem leið þar sem hart var tekist á Alþingi vegna áætlana stjórnarflokkanna að slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

„Það var eiginlega þyngra en tárum taki að fylgjast með þessu í byrjun,“ sagði Þorgerður Katrín. „Það hefði þurft að segja manni tvisvar að stærstu mótmælin síðan í hruninu væru byggð á Evrópusambandinu.“

Menntamálaráðherrann fyrrverandi viðurkenndi að ólga væri innan flokksins. Ekki væri sama eining og flokkurinn hefði verið þekktur fyrir í gegnum tíðina.

„Stór hluti flokksins segir núna: „Við viljum ekki leyfa harðlífinu að taka yfir.“ Við viljum ekki að svartstakkarnir í flokknum eigi flokkinn meira en ég eða þú,“ sagði Þorgerður Katrín. Aðspurð hverjir svartstakkarnir væru sagði Þorgerður:

„Ég held að það sé svo augljóst.“

Þorgerður Katrín minnti á að hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Framsóknarflokkurinn væri hrein mey í Evrópumálum. Þorgerður minnti á aldarmótaskýrslu flokks síns og að Sjálfstæðisflokkurinn hefði farið fyrir inngöngu Íslands í EFTA á sínum tíma.

Þorgerður sagði þó viðtal við formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson, í vikulok, hafa sýnt hvers lags leiðtoga hann hefði að geyma.

„Mér finnst hafa opnast ákveðið svigrúm,“ sagði Þorgerður Katrín. Fáir leiðtogar í ríkisstjórn hefðu nokkru sinni viðurkennt, eftir jafnerfiða viku á Alþingi, að læra þyrfti af vikunni í stað þess að keyra málið áfram af krafti.

„Það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið svo lánsamur í gegnum áttatíu ára sögu flokksins er að tengja saman borgaralega sinnuð öfl í samfélaginu og ná að hafa þau saman. Þess vegna höfum við verið svona sterk,“ sagði Þorgerður. Nú væri hins vegar allt að rjátlast niður.

„Við verðum ekki 30 prósenta flokkur með sama áframhaldi.“


Tengdar fréttir

Þjóðin hafi síðasta orðið

Dagur B. Eggertsson leggur fram tillögu á stjórnarfundi Sambands íslenska sveitarfélaga að hvatt verði til þess að ríkisstjórin standi við fyrirheit sín og dragi til baka tillögu sína um að viðræðum um aðild að Evrópusambandinu verði slitið.

Tveir af þremur vilja ljúka ESB-viðræðum

Meirihluti stuðningsmanna annarra flokka en stjórnarflokkanna vill ljúka aðildarviðræðum, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Mikill meirihluti framsóknarmanna og sjálfstæðismanna vill slíta viðræðunum.

Töluðu ærlega um þjóðaratkvæðagreiðslu

Tveir þingmenn ríkisstjórnarflokkanna vilja að hlustað verði á þjóðina í ESB-málinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að forysta flokksins hafi talað með ærlegum hætti um þjóðaratkvæðagreiðslu í málinu fyrir síðustu kosningar.

Við erum hér fyrir fólkið - ekki öfugt

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að ríkisstjórnin verði að mæta ákalli þjóðarinnar í kjölfar mótmæla og skoðannakannanna síðustu daga.

Svikin loforð vega þyngra en viðræðuslit

Hátt í átta þúsund manns mættu á samstöðufund sem haldin var á Austurvelli í dag þar sem ákörðun stjórnvalda um að draga tilbaka umsókn Íslands að Evrópusambandinu var mótmælt. Þetta er í fimmta sinn á sex dögum sem blásið er til mótmæla vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×