Innlent

„Við teljum okkur vera búin að yfirheyra hann nokkuð stíft“

Birgir Olgeirsson skrifar
Maðurinn sem er í haldi vegna málsins er hér leiddur af lögreglu úr Héraðsdómi Reykjaness.
Maðurinn sem er í haldi vegna málsins er hér leiddur af lögreglu úr Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Anton Brink
„Við teljum okkur vera búin að yfirheyra hann nokkuð stíft, jafnvel þó það hafi ekki verið gert síðustu daga,“ segir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn um manninn sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að dauða Birnu Brjánsdóttur.

Maðurinn var síðast yfirheyrður á fimmtudag en sama dag var hann úrskurðaður í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald og einangrun.

Grímur segir að sá tími mun koma þegar maðurinn verður yfirheyrður á ný en engin ákvörðun verið tekin hvenær það verður.

Leitað var að munum Birnu Brjánsdóttur í Selvogi á sunnudag vegna ábendingar sem barst frá borgara um helgina. Grímur segir enga frekari leit fyrirhugaða á svæðinu því lögreglan telur sig vera búna að fara í gegnum það sem átti að fara í gegnum.

Hann segir endanlega krufningsskýrslu ekki liggja fyrir en að lögreglan telji það liggja fyrir hver hún var.

Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því í gær að dánarorsök Birnu hefði verið drukknun og að einnig hefðu verið áverkar sem benda til þess að þrengt hafi verið að hálsi hennar.

Grímur vildi ekkert tjá sig um þetta í samtali við Vísi.

 


Tengdar fréttir

Segir að skipverjanum hefði mátt sleppa fyrr

Verjandi skipverjans, sem sleppt var úr haldi fyrir helgi eftir að hafa verið talinn viðriðinn hvarf Birnu Brjánsdóttur, segir að ljóst hafi verið snemma að maðurinn væri saklaus. 

Sakaði þann sem er í haldi um nauðgun

Lögreglan hefur farið yfir sakaferil mannsins sem grunaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur. Hann var sýknaður af nauðgun á Grænlandi fyrir fjórum árum. Konan sem kærði manninn þá segir mál Birnu hafa haft mikil áhrif á sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×