Glamour

"Við klæðum okkur öll fyrir Bill.“

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tískuheimurinn syrgir nú ljósmyndarann Bill Cunningham sem lést um helgina, 87 ára að aldri. Bill var einn þekktasti ljósmyndari í heimi en hann vann fyrir New York Times þar sem hann fangaði götutískuna á einstakan máta og var í raun upphafsmaður götutískuljósmyndunar.

Cunningham byrjaði að vinna hjá New York Times árið 1978 þar sem hann sá um síðurnar „On the streets with Bill Cunningham“ en hann sagði alltaf að ein flottasta tískusýningin ætti sér stað á götunni. Tískuelítan splæsti alltaf í sparibrosið fyrir Bill og Anna Wintour ritstjóri Vogue lét hafa það eftir sér, í heimildamynd sem var gerð um ljósmyndarann fræga árið 2011 (sjá stiklu neðar í fréttinni), að „við klæðum okkur öll fyrir Bill“. 

Þrátt fyrir að vera sjálfur með auga fyrir tísku, trendum og áhugaverðum fatasamsetningum hjólaði Bill sjálfur alltaf um göturnar í sömu fötunum. Kóngablár jakki, ljósar buxur og svartir strigaskór með myndavélina um hálsinn var einkennisklæðnaður Bill. 

Tískuvikurnar verða ekki eins í haust þegar þennan kappa vantar til að fanga mómentin á filmu. Blessuð sé minning Bill. 

 

 

Meistari er fallinn frá - RIP #billcunningham

A photo posted by Glamour Iceland (@glamouriceland) on






×