Innlent

„Þyngra en tárum taki“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna. vísir/sigurjón ólason
„Það hvernig mál hafa skipast varðandi samgönguáætlun er eiginlega þyngra en tárum taki,“ sagði Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, í sérstökum umræðum um samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar.

Kolbeinn, og fleiri þingmenn stjórnarandstöðunnar, gagnrýndu niðurskurð á þeirri samgönguáætlun sem samþykkt var, mótatkvæðalaust, á þingi í október síðastliðnum.

Jón Gunnarsson samgönguráðherra sagði að vissulega hafi verið skorið niður – en að öllum sé ljóst að áherslurnar hafi verið á heilbrigðismálin. Hann sagðist binda vonir við ða auknu fjármagni verði varið í samgöngur í þessu ári.

Sama krónan ekki notuð tvisvar sinnum

„Menn geta velt sér endalaust upp úr þessari umræðu að það hefur ekki verið fjármögnuð samgönguáætlun sem var unnin í október. Það er alveg rétt og það hefur ekki farið fram hjá neinum. En eins og ég hef sagt áður að staðan í því máli og var á þeim tíma þannig að menn höfðu miklar væntingar til þess sem yrði til ráðstöfunar á þessu ári,“ sagði hann.

„Síðan þegar þingið settist yfir það og náð tiltölulega ágætri sátt um hvert skyldi halda þá voru áherslurnar þær sem við þekkjum öll í þessum sal, þær voru á heilbrigðis- og velferðarmál. Og sama krónan er ekki notuð tvisvar sinnum.“

Einar Brynjólfsson, þingmaður Pírata, vakti máls á slagorði Sjálfstæðisflokksins, flokki Jóns Gunnarssonar. „Fyrir síðustu alþingiskosningar var eitt helsta slagorð Sjálfstæðisflokksins „Á réttri leið“. Ég ætla nú ekki að eyða mörgum orðum í það slagorð en vil þó benda á að sú leið verður ansi torsótt ef hún verður farin eftir íslensku vegakerfi,“ sagði hann. Vilji þingheims hvað þessi málefni varðar hafi endurspeglað vilja almennings fullkomlega.

„Margumrædd samgönguáætlun sem samþykkt var í október síðastliðnum var mjög metnaðarfull. Liggur við að segja að hún hafi verið alveg frábær. Hún var samþykkt í breiðri sátt allra flokka sem hér sátu á þingi, eftir því sem ég best veit, og vil meina að fá mál af þessari stærðargráðu hafi notið jafn mikillar velþóknunar almennings og þetta gerði,“ sagði Einar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×