Innlent

„Því miður fóru þeir frá okkur, það er ekki gott“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands
Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, viðurkennir að það hafi verið erfitt að berja saman samkomulag á lokametrunum samningaviðræðanna við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Nýr kjarasamningur félaganna var undirritaður í nótt. Sjómanna- og Vélstjórafélag Grindavíkur, aðildarfélag SÍ, tók samningsumboð sambandsins til baka í gærkvöldi og stendur því utan samninga. Einnig hefur ekki náðst samningur við Sjómannafélag Íslands.

„Því miður þá heltust félagar okkar í Grindavík úr lestinni. Þeir töldu sig ekki geta skrifað undir þennan samning og drógu umboð sitt til baka frá Sjómannasambandinu,“ sagði Valmundur í samtali við fréttastofu í nótt.

Ástæðan fyrir því hafi verið sú að Grindvíkingarnir töldu sig ekki fá nóg út úr þeim samningum sem undirritaðir voru að sögn Valmundar.

Sjá einnig: Segja góðan vilja skila samningi sem allir geti vel unað

„Svona er þetta bara. Samninganefndin okkar var samhljóða, nema þeir, um að við gætum sætt okkur við þennan samning,“ segir Valmundur en samningurinn er til næstu tveggja ára.

„En því miður fóru þeir frá okkur, það er ekki gott.“

Valmundur segist vera þokkalega sáttur við samninginn og að ekki verði komist lengra. „Þetta var niðurstaðan og við erum þokkalega sáttir við þetta,“ segir Valmundur og bætir við að þrátt fyrir að þeir hafi þurft að gefa eitthvað eftir sé á borðinu samningur sem hann geti mælt með.

Verkfalli er frestað fram á þriðjudagskvöld og verður tíminn nýttur til að kynna samninginn. Þá hefst rafræn atkvæðagreiðsla sem stendur alveg fram í miðjan desember. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×