Sport

"Þeir sem eru í mesta afreksstarfinu eiga að fá mest“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sérsamböndum innan ÍSÍ verður skipt í þrjá flokka þegar kemur að úthlutun úr afrekssjóði ef nýjar reglur verða samþykktar á næsta íþróttaþingi eins og Vísir fjallaði um í dag.

Vinnuhópur sem skipaður var af framkvæmdastjórn ÍSÍ í september í fyrra kynnti í dag tillögur sínar til breytinga á reglum Afrekssjóðs Íþrótta- og Ólympíusambandsins er kemur að úthlutun úr sjóðnum.

Stærsta breytingin er sú að sérsamböndunum 32 verður skipt upp í þrjá flokka; Afrekssambönd sem eiga að fá 45-70 prósent af hverri úthlutun, Alþjóðleg sérsambönd sem eiga að fá 33-35 prósent og Þróunarsamönd sem eiga að fá 10-15 prósent af hverri úthlutun. Þessi skipting var kynnt fyrir formönnum sérsambandanna í gær.

„Auðvitað eru ekki allir sammála og við skiljum það og það er bara fínt. Við leggjum áherslu á að þetta verði rætt í íþróttahreyfingunni. Við erum aftur á móti að reyna að fækka matskenndu atriðunum í Afrekssjóði og efla sjálfstæði sjóðsins, gegnsæi og rökstuðng fyrir því sem er verið að gera,“ segir Stefán Konráðson, formaður íþróttanefndar ríkisins, sem er einn fjögurra í vinnuhópnum.

96 blaðsíðna skýrsla vinnuhópsins verður tekin til umræðu á íþróttaþingi í maí þar sem tillögurnar verða mögulega samþykktar. Stefán er sjálfur spenntastur fyrir þessari flokkaskiptingu því þeir sem gera mest eiga að fá mest.

„Miðað við daginn í dag og vöxt íþróttahreyfingarnnar er skynsamlegt að reyna að skilgreina afrek og skilgreina flokkana. Afrekssjóður á að vera afrekssjóður ekki félagslegur afrekssjóður. Þeir sem eru í mesta afreksstarfinu eiga að fá mest af þessu fé,“ segir Stefán.

Vinnuhópurinn kallar eftir meira gegnsæi við úthlutun úr sjóðnum. Nú skal Afrekssjóður vera með heimasíðu og rökstyðja opinberlega hvers vegna viðkomandi samband fær hvað. Af hverju hefur þetta ekki verið til áður?

„Rökstuðningurinn hefur verið inn á við en árið 2017 er krafan sú að rökstuðningurinn sé út á við og alltaf uppi á borði. ÍSÍ hefur alltaf reynt að koma heiðarlega fram í þessu,“ segir Stefán Konráðsson.

Alla fréttina úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×