Innlent

„Það er engin leið að útskýra hvernig manni líður“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/valgarður
Margir hafa spurt mig um framhaldið en ég get ekki svarað því að svo stöddu enda er toppurinn ekkert forgangsatriði núna. Það er mér margt annað ofar í huga þessa stundina og næstu dagar verða að leiða framhaldið í ljós. Þetta skrifar Vilborg Arna Gissurardóttir á vefsíðu sína. Eins og kunnugt er, varð gríðarlegt snjóflóð á Everest fjalli, 500 metrum fyrir ofan grunnbúðirnar þar sem Vilborg er stödd. Þrettán manns létu lífir, allir þaulvanir fjallaleiðsögumenn. Þrír eru enn ófundnir en leitinni að þeim var hætt í dag.

„Mér varð fljótt ljóst eftir að ég steig út úr tjaldinu mínu að eitthvað rosalegt hafði gerst. Maður verður mjög lítilsmegnugur að horfa upp í fjallshlíðina, á slysstaðinn, og vita af fólki þjást án þess að geta nokkuð gert. Maður er svo nálægt en samt svo langt í burtu,“ skrifar Vilborg jafnframt.

Hún segir björgunaraðgerðum hafa verið stýrt af reynslumiklu fólki og þakkar hún björgunarsveitinni Ársæli fyrir björgunarsveitaþjálfunina, því vegna hennar hafi hún getað tekið þátt í störfum á því starfssvæði. Vilborg starfaði í sjúkratjöldum í grunnbúðunum og hlúði þar að hinum slösuðu.

„Þennan dag bar margt fyrir sjónir sem ég á aldrei eftir að gleyma, en ég ætla ekki endilega að reyna að koma því í orð.“ Hún greinir frá því að fjallaleiðsögumenn úr hennar starfslið hafi látist. Hún segir höggið og missirinn fyrir samfélagið mikið.

Þá þakkar hún kveðjurnar og stuðninginn sem henni hafa borist. „Það er engin leið að útskýra hvernig manni líður á degi sem þessum er maður upplifir slíkar hörmungar.“


Tengdar fréttir

Móðurhjartað sló mikið eftir snjóflóðið

Móðir Ingólfs Axelssonar Everest-fara segist vera mjög þakklát fyrir að hann og Vilborg Arna Gissurardóttir séu heil á húfi eftir snjóflóðið mannskæða í fjallinu í gær.

Ingólfur er heill á húfi

"Ingó is OK!" stendur á heimasíðunni ingoax.is þar sem fylgst er með ferðalagi Ingólfs á Everest

Móðir Vilborgar: „Hún er þjóðarstolt“

"Ég er nokkuð viss í mínu hjarta að hún haldi áfram ef það er möguleiki. Ég verð samt voðalega fegin þegar hún er komin niður aftur. Hún er alltaf stelpuskottið.“

Þrettán látnir í snjóflóði á Everest

Að minnsta kosti þrettán eru látnir í snjóflóði sem féll í hlíðum Everest snemma í morgun. Þetta er talið eitt mannskæðasta slys í sögu Everest.

Leit að mönnunum á Everest hætt

Skipulagðri leit að fjallaleiðsögumönnunum þremur á Everest er nú formlega hætt. Leitin hefur staðið yfir frá því að snjóflóðið féll í fyrradag en leitarskilyrði hafa verið slæm.

Ingólfur heldur áfram

Ingólfur Axelsson segist ætla að halda áfram fjallgöngu sinni á Everest-fjall en Vilborg Arna Gissurardóttir ætlar að gefa sér nokkra daga áður en hún ákveður framhaldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×