Fótbolti

„Svínið af Marseille“ ætlar að ráðast á saklausa múslima með Rússum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
James Shayler.
James Shayler. vísir/afp
James Shayler, ein þekktasta fótboltabulla Englands, ætlar að endurtaka leikinn frá því 1998 og vera með læti í Marseille eins og hann gerði á heimsmeistaramótinu í Frakklandi fyrir 18 árum síðan. Frá þessu er greint á vef Daily Mail.

Shayler, sem er kallaður Svínið af Marseille, hótar að meiða saklausa múslima ásamt kollegum sínum frá Rússlandi þegar England og Rússland mætast á Evrópumótinu 11. júní en leikurinn fer fram í Marseille.

Shayler fékk þetta áhugaverða viðurefni á HM í Frakklandi 1998 þegar hann var fangelsaður sem forsprakki bulluhóps sem réðst að lögreglunni í Marseille eftir sigur Englands gegn Túnis á mótinu.

Nú er hann kominn í samstarf við Landscrona, þekktan bulluhóp rússneska liðsins Zenit frá Pétursborg en saman ætla þeir að ráðast á múslima í Marseille en um 220.000 af 900.000 íbúum borgarinnar eru múslimar.

„Rússarnir hata þá [múslimana], er það ekki? England stendur með Rússlandi gegn múslimum,“ sagði Shayler í samtali við blaðamann Daily Mail. „Rússarnir eru að redda mér miðum á leikinn í Marseille þannig ég horfi líklega á leikinn með þeim í stúkunni. Það verður ekkert vandamál,“ segir svínið.

Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu koma ekki til Marseille fyrr en sex dögum síðar en þeir eiga leik gegn Ungverjalandi 18. júní í Marseille.

 

Shayler sat inni í sjö og hálft ár frá 1999 þegar hann var fundinn sekur um að stýra sölu á kókaíni. Hann var aftur fangelsaður í fimm ár 2008 fyrirað skipuleggja þjófnað á tveimur flutningabílum sem fluttu sjónvörp.

Hann segist ekki vera einn af þeim tæplega 2.000 stuðningsmönnum frá Bretlandi sem lögreglan er búinn að banna að fara yfir landamærin til Frakklands. Um 1.200 öryggisverðir verða á og í kringum Stade Velodrome-völlinn í Marseille 11. júní og þurfa allir áhorfendur að ganga í gegnum málmleitartæki áður en þeir fara inn á völlinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×