Innlent

„Önnur hver stelpa sem ég þekki hefur prófað þetta“

Sveinn Arnarsson og Þórhildur Þorkelsdóttir skrifa
Sautján ára stúlka, sem haldin hefur verið slæmri sjálfskaðafíkn í fjögur ár, segir sjálfskaða vera algengt og vaxandi vandamál meðal íslenskra ungmenna. Þrátt fyrir það séu fordómar í garð sjúkdómsins miklir og fræðslan engin.

Herdís Hlíf Þorvaldsdóttir setti í gær inn færslu á Facebook-hópinn Beautytips þar sem hún lýsti sjálfsskaðandi hegðun sem hófst fyrir fjórum árum, þegar hún var 13 ára gömul. Sjálfskaðandi hegðun lýsir sér þannig að fólk sker sig eða meiðir á annan hátt til að fá útrás fyrir andlegan sársauka en Herdís er greind með þunglyndi.

„Þetta er þannig að þegar þetta er komið ákveðið langt þá geturðu ekki hugsað um neitt annað þegar þér líður illa. Þú hlakkar til að fara heim og leita í þetta. Þetta er eins og sígarettufíkn, þú færð bara craving og þú bara verður,“ segir hún.

Herdís ber bersýnilega merki sjálfskaðafíknar.VÍSIR/SKJÁSKOT
Veikindin hafa haft mikil áhrif á fjölskyldu Herdísar. 

„Ég hef þurft að fara upp á spítala í skjóli nætur með mömmu minni alveg þrisvar sinnum. Allt í allt er ég með 25 spor eftir skurðina. Þegar maður er í þessu ástandi getur maður ekki hugsað um neitt annað, og ekki annað fólk, en þetta hefur haft mikil áhrif á fjölskylduna mína og fólkið í kringum mig,“ segir Herdís. 

Herdís segir sjálfskaðandi hegðun vera falið vandamál sem fjölmörg íslensk ungmenni glími við. Hún vill að sín reynsla verði öðrum víti til varnaðar. 

„Það sem er erfitt og leiðinlegt við þetta er að þetta virðist ekki beint vera trend en er það samt. Þetta hefur verið að færast mikið í aukana og ég þekki ótrúlega mikið af krökkum sem eru að þessu. Ég held að fólk átti sig ekki á því hvað það eru margir. Önnur hver stelpa sem ég þekki hefur prófað þetta að minnsta kosti einu sinni. Þess vegna finnst mér að foreldrar þurfi að vera á varðbergi. Ég náði til dæmis að fela þetta í heilt ár fyrir öllum. Það er mikilvægt að opna á umræðuna. Það er lítið talað um þetta, ekkert í skólum og svoleiðis, það er engin fræðsla. Það þarf að tala um þetta,“ segir Herdís.  

Viðtalið við Herdísi má sjá í spilaranum hér að ofan. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×