Innlent

„Náungarnir ganga hérna um svo uppdópaðir að augun á þeim standa út“

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur/AFP
Íbúar í Fjallabyggð eru margir hverjir orðnir dauðþreyttir og áhyggjufullir yfir því sem þeir telja vera aukin fíkniefnaumsvif í sveitarfélaginu. Bæjarstjórinn í Fjallabyggð hefur tekið málið upp og rætt við lögregluyfirvöld norðan heiða.

Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 5. ágúst. Í fundargerðinni kemur fram að bæjarráð Fjallabyggðar vilji að ráðist verði í átak gegn fíkniefnasölu í bæjarfélaginu og að þar verði ekki „griðarstaður fyrir fíkniefnasala“. Þá hvetur bæjarráð foreldra til að sýna aðgæslu hvað þessi mál varðar.

Meinsemd í okkar þjóðfélagi

„Menn hafa miklar áhyggjur af þessum málum. Þetta virðist vera að spretta upp í öllum samfélögum og við viljum koma þeim skilaboðum til foreldra að þau gæti vel að,“ segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, í samtali við Vísi.

Sigurður Valur fundaði með Daníel Guðjónssyni, yfirlögregluþjóni á Akureyri, vegna málsins.

„Við vorum að óska eftir því við lögregluyfirvöld að þau gerðu átak í því, að ef þetta væri til staðar hjá okkur þyrftir að taka á því strax.“

„Um þetta snýst málið og það þarf ekkert að ræða það undir rós. Þetta er meinsemd í okkar þjóðfélagi og við þurfum að taka á þessu,“ segir Sigurður.

Íbúi Fjallabyggðar sem hafði samband við Vísi segir málið snúast um hóp einstaklinga sem hafi komið sér fyrir í bæjarfélaginu. Foreldrar hafi áhyggjur af börnum sínum og fólk sé byrjað að læsa bílum sínum og húsum. Áður fyrr hafi þess ekki þurft en nú sé fólk hrætt.

„Náungarnir ganga hérna um svo uppdópaðir að augun á þeim standa út,“ segir íbúinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið.

Einstaklingar sem lögreglan þekkir til

„Við höfum fengið kvartanir frá íbúum yfir ákveðnum einstaklingum á svæðinu. Við munum koma til með að skoða það. Bæði í víðara samhengi og þrengra,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri.

Hann segir að lögreglan muni taka málið til skoðunar og bregðast við í samræmi við hvað komi úr þeirri skoðun.

„Á þessu svæði er fólk sem hefur áður komið við sögu lögreglu og við þekkjum til,“ segir Daníel. Hann veltir fyrir sér hvort fíkniefnasala á svæðinu sé að vinda upp á sig og verða sýnilegri en áður.

„Það kemur í ljós. Við tökum þessar ábendingar til skoðunar sem og áhyggjur bæjarráðs. Við tökum þessu alvarlega og munum bregðast við í samræmi við það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×