„Mikilvægt að bænarorðin hljómi í almannarýminu“ Atli Ísleifsson skrifar 25. október 2014 14:36 Agnes M. Sigurðardóttir biskup. Vísir/Anton „
Þrátt fyrir ýmislegt sem haldið er fram um áhugaleysi fólks gagnvart kirkjunni er ljóst að almenningur í þessu landi er því fylgjandi að erindi kirkjunnar haldi áfram að heyrast og boðskapurinn haldi áfram að lifa.“ Þetta sagði Agnes M. Sigurðardóttir í ræðu sinni á kirkjuþingi sem sett var í Grensáskirkju í morgun. Agnes varði hluta ræðu sinnar í að fjalla um kirkjulega dagskrárliði í Ríkisútvarpinu sem mikið hefur verið fjallað um síðustu mánuði. „Nýjasta dæmið er þegar fréttir bárust af því að fella ætti úr dagskrá Ríkisútvarpsins daglegar bænir. Morgunbænir hafa verið í útvarpi allra landsmanna nánast frá byrjun sem og guðsþjónustur á sunnudögum. Kvöldbænirnar hafa hljómað frá gosinu í Vestmannaeyjum árið 1973 og var það dyggur hlustandi útvarpsins sem fór fram á það í fyrstu að farið væri að ákalla guð í bæn á öldum ljósvakans þegar allar bjargir voru bannaðar og höfnin að lokast. Með hjálp góðra manna var orðið við þessari bón og var sá háttur hafður á næstu fjörutíu árin. Þá var tilefnið gleymt og þörfin farin að mati ráðamanna. Við þetta vildi margir ekki una og var þessu mótmælt harðlega eins og kunnugt er.“ Biskup sagðist af þessu tilefni hafa sent út tilkynningu þar sem sagði að eitt af hlutverkum þjóðkirkjunnar væri að standa vörð um kristinn boðskap og gildi í þjóðfélaginu. „Það er ekki hlutverk hennar að setja saman dagskrá Ríkisútvarpsins þótt útvarpið og kirkjan eigi gott samstarf um skipulag og framkvæmd nokkurra dagskrárliða svo sem Útvarpsguðsþjónustu, Morgunbænar, Morgunandaktar og Orðs kvöldsins. Í umræðum um breytingar á dagskrá Rásar 1 áttum við Magnús Geir Þórðarson samskipti um hvernig breytingarnar snertu áðurnefnda dagskrárliði. Í samtölum okkar kom ég því á framfæri að mér þætti það miður að ekki væri rými í nýrri dagskrá fyrir bæði Orð kvöldsins og Morgunbæn á þeim tímum sem þessir liðir hafa verið. Samkvæmt mínum skilningi er það í takt við hrynjandi dagsins, árstíðanna og lífsins að hafa bæn í upphafi og lok dags. Það er mikilvægt að bænarorðin hljómi í almannarýminu og þar gegnir Ríkisútvarpið leiðandi hlutverki. Ég vil með þessum orðum hvetja útvarpsstjóra til að leita allra leiða til að skapa rými í dagskrá Rásar 1 fyrir kvöldbæn.“ Biskup sagði þetta hitamál í kringum bænamálið í Ríkisútvarpinu sýna að fólki væri ekki sama. „Ef til vill er sumum ofboðið hvernig reynt er að koma í veg fyrir að trúarboðskapur og bænamál heyrist í þjóðfélagi okkar,“ sagði Agnes í ræðu sinni. Agnes minntist jafnframt á að kirkjuráð hafi fundið mikinn velvilja hjá alþingismönnum sem sitja í samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar og vilja þeirra til að standa við gerða samninga og lög er varða kirkjuna. „Því miður hefur það ekki verið svo hin síðustu ár, eins og fram hefur komið, enda er fjárhagsstaða hinna 270 sókna landsins komin niður fyrir þolmörk og þjóðkirkjan á í vanda við að standa við þjónustuskyldur sínar við þjóðina.“ Hlýða má á ræðu biskups í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Efast ekki um að fólk eigi eftir að sakna bænanna Dagskrárstjóri Rásar eitt segir litla hlustun á bænir. Dómkirkjuprestur segir bænalesturinn þjónustu við fólkið í landinu. Formaður Landssambands eldri borgara vill að biskup og prestar landsins mótmæli. 14. ágúst 2014 07:00 Jólatónleikar Fíladelfíu teknir af dagskrá RÚV: „Ég er aðallega leiður fyrir hönd þjóðarinnar“ Jólatónleikar Fíladelfíu hafa verið sýndir á aðfangadag ár hvert frá því árið 2001. Óskar Einarsson tónlistarstjóri segir það ekki rétt að ákvörðunin snúist um kostnað. 7. október 2014 07:00 Vantrú fagnar aflagningu bænahalds á Rás 1 „Það er ekki hlutverk ríkisins að vera með útvarpsstöð sem sér um trúarþarfir fólks og bænahald,“ segir formaður Vantrúar. 14. ágúst 2014 16:24 Verið að jaðarsetja sið kristinna manna á Íslandi Þórir Jökull Þorsteinsson prestur veltir því fyrir sér hvort RÚV sé í stríði við kristna menn á Íslandi. 18. ágúst 2014 10:53 Sigmundur Davíð um bænir á RÚV: „Amen“ Forsætisráðherra fjallar um ákvörðun útvarpsstjóra. 19. ágúst 2014 14:04 Afhentu útvarpsstjóra bænaskjal og bænabók Nokkur fjöldi fólks safnaðist saman við Útvarpshúsið í Efstaleiti klukkan 7:30 í morgnun til þess að þakka útvarpsstjóra og hvetja hann til að halda áfram með dagskrárliðinn Orð kvöldsins í þágu eldri borgara. 22. ágúst 2014 08:04 Bænirnar hverfa af RÚV: "Áfall fyrir kristindóminn í landinu“ Vígslubiskupinn í Skálholti er afar óhress með Ríkisútvarpið fyrir að ætli að fella niður morgunbæn, morgunandakt og orð kvöldsins á Rás eitt í lok mánaðarins. "Afar lítil hlustun á þessa dagskrárliði“, segir dagskrárstjóri rásarinnar. 13. ágúst 2014 18:30 Bænirnar verða áfram á RÚV Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, hefur tekið þá ákvörðun að halda áfram með dagskráliðina Orð kvöldsins og Morgunbæn á Rás 1. 19. ágúst 2014 13:29 „Starfsfólk Ríkisútvarpsins hefur lagt við hlustir“ Útvarpsstjórinn hefur tekið þá ákvörðun að halda áfram með Orð kvöldsins og Morgunbæn. 19. ágúst 2014 14:16 Mest lesið Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira
Efast ekki um að fólk eigi eftir að sakna bænanna Dagskrárstjóri Rásar eitt segir litla hlustun á bænir. Dómkirkjuprestur segir bænalesturinn þjónustu við fólkið í landinu. Formaður Landssambands eldri borgara vill að biskup og prestar landsins mótmæli. 14. ágúst 2014 07:00
Jólatónleikar Fíladelfíu teknir af dagskrá RÚV: „Ég er aðallega leiður fyrir hönd þjóðarinnar“ Jólatónleikar Fíladelfíu hafa verið sýndir á aðfangadag ár hvert frá því árið 2001. Óskar Einarsson tónlistarstjóri segir það ekki rétt að ákvörðunin snúist um kostnað. 7. október 2014 07:00
Vantrú fagnar aflagningu bænahalds á Rás 1 „Það er ekki hlutverk ríkisins að vera með útvarpsstöð sem sér um trúarþarfir fólks og bænahald,“ segir formaður Vantrúar. 14. ágúst 2014 16:24
Verið að jaðarsetja sið kristinna manna á Íslandi Þórir Jökull Þorsteinsson prestur veltir því fyrir sér hvort RÚV sé í stríði við kristna menn á Íslandi. 18. ágúst 2014 10:53
Sigmundur Davíð um bænir á RÚV: „Amen“ Forsætisráðherra fjallar um ákvörðun útvarpsstjóra. 19. ágúst 2014 14:04
Afhentu útvarpsstjóra bænaskjal og bænabók Nokkur fjöldi fólks safnaðist saman við Útvarpshúsið í Efstaleiti klukkan 7:30 í morgnun til þess að þakka útvarpsstjóra og hvetja hann til að halda áfram með dagskrárliðinn Orð kvöldsins í þágu eldri borgara. 22. ágúst 2014 08:04
Bænirnar hverfa af RÚV: "Áfall fyrir kristindóminn í landinu“ Vígslubiskupinn í Skálholti er afar óhress með Ríkisútvarpið fyrir að ætli að fella niður morgunbæn, morgunandakt og orð kvöldsins á Rás eitt í lok mánaðarins. "Afar lítil hlustun á þessa dagskrárliði“, segir dagskrárstjóri rásarinnar. 13. ágúst 2014 18:30
Bænirnar verða áfram á RÚV Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, hefur tekið þá ákvörðun að halda áfram með dagskráliðina Orð kvöldsins og Morgunbæn á Rás 1. 19. ágúst 2014 13:29
„Starfsfólk Ríkisútvarpsins hefur lagt við hlustir“ Útvarpsstjórinn hefur tekið þá ákvörðun að halda áfram með Orð kvöldsins og Morgunbæn. 19. ágúst 2014 14:16