Bíó og sjónvarp

"Með vini mínum Darra“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hasarmyndaleikarinn Vin Diesel birtir mynd af sér með íslenska leikaranum Ólafi Darra á Facebook-síðu sinni.

Vin og Ólafur eru nú í Pittsburgh í Bandaríkjunum við tökur á stórmyndinni The Last Witch Hunter sem væntanleg er í kvikmyndahús á næsta ári.

„Ein af tökustað í þessari viku með vini mínum Darra,“ skrifar Vin við myndina og bætir við að hann sé mjög spenntur og innblásin yfir því að leika með svona frábærum leikurum.

Myndin hefur fallið vel í kramið hjá aðdáendum Vins og eru rúmlega tvö hundruð þúsund manns búnir að líka við hana.

Í öðrum hlutverkum í The Last Witch Hunter eru Elijah Wood, Michael Caine og Rose Leslie.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×