Innlent

„Lengi getur gott batnað“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Hildur Björnsdóttir sem skipar 2. sætið á lista flokksins fallast hér í faðma á kosningavökunni á Grand Hotel í kvöld.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Hildur Björnsdóttir sem skipar 2. sætið á lista flokksins fallast hér í faðma á kosningavökunni á Grand Hotel í kvöld. vísir/vilhelm
Það var gott hljóð í Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, þegar Vísir náði tali af honum til að fá viðbrögð við þriðju tölum í Reykjavík.

Þær tölur sýna Sjálfstæðisflokkinn í yfirburðastöðu í borginni með 32 prósent atkvæða og níu borgarfulltrúa.

 

„Lengi getur gott batnað segi ég bara,“ sagði Eyþór og hélt áfram:

„Við settum okkur það markmið að fella þennan meirihluta og það hefur gjörsamlega tekist og að vera leiðandi afl í breytingum með því að vera stærsti flokkurinn. Við sjáum að ákall eftir breytingum er ákaflega skýrt. Við, flokkurinn sem talaði fyrir breytingum, erum langstærsti flokkurinn og svo nýju flokkarnir sem líka töluðu fyrir breytingum eru að fá mikið fylgi en þeir flokkar sem töluðu um að halda áfram með óbreytt ástand að þeir eru að steyta á skeri.“

Miðað við hvernig tölurnar í Reykjavík standa núna er Viðreisn í oddastöðu. Það mun því væntanlega velta á þeim flokki hvort að myndaður verði meirihluti í borginni til vinstri eða hægri svo það liggur beinast við að spyrja Eyþór hvort hann sé byrjaður að tala við Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar.

„Við Þórdís Lóa erum búin að vera ásamt öðrum á milli sjónvarpsstöðvanna. Ég finn mikinn samhljóm á milli þessara tveggja flokka í mjög mörgum málum. Við viljum einfalda stjórnkerfið, lækka álögur, setja fjármagn í skólana og svo framvegis. Þetta eru allt saman mál sem þessir flokkar eru sammála um en nú er bara að sjá hvernig tölurnar enda,“ segir Eyþór.

En hann er þá ekki byrjaður að mynda meirihluta nú þegar bak við tjöldin?

„Nei, við erum einfaldlega að fylgjast með tölunum. En það er boðskapur í tölunum, ákall um breytingar, og ég er viss um að Viðreisn og aðrir flokkar sem koma nýir inn vilji taka þátt í breytinum.“


Tengdar fréttir

„Ég ætlaði að koma með áttunda manninn með mér“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og oddviti Samfylkingarinnar, þakkaði flokksmönnum sínum fyrir hlýjar móttökur þegar hann mætti á kosningavöku flokksins í Austurbæ nú skömmu eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×