Innlent

„Jafnréttisbaráttan er ekki einkamál kvenna“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Inga Dóra Pétursdóttir er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
Inga Dóra Pétursdóttir er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Vísir/Stefán Karlsson
HeForShe-herferð UN Women var formlega kynnt um helgina í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York. Herferðin hefur það að markmiði að fjölga körlum sem styðja jafnrétti kynjanna.

„Það sem þessi herferð er fyrst og fremst að benda á er að jafnréttisbaráttan er ekki einkamál kvenna heldur eigum við öll að vera saman í þessu,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Lögð er áhersla á það í herferðinni hvað kynin eiga sameiginlegt frekar en það hvað greinir þau í sundur.

Inga Dóra segir jafnframt mikilvægt að beina sjónum því að ungir strákar geti verið alveg jafnfjötraðir í staðalímyndum kynjanna og stelpur.

Aðspurð segir Inga Dóra íslenska karlmenn taka vel í herferðina.

„Það er hægt að fylgjast með á heimasíðu UN Women hversu margir hafa skráð sig til þátttöku í herferðinni. Herferðin er auðvitað nýbyrjuð en 83 íslenskir karlar hafa þegar skráð sig til þátttöku. Til samanburðar hafa 74 skráð sig í Kína.“

Inga Dóra bendir einnig á þátttöku ungra stráka í Ungmennaráði UN Women á Íslandi sem fer til dæmis í framhaldsskóla og kynnir starfsemi og herferðir samtakanna. Hún segir það frábært hversu móttækilegir ungir menn séu fyrir mikilvægi jafnréttisbaráttunnar.

Emma Watson, velgjörðarsendiherra UN Women, flutti ræðu í höfuðstöðvum SÞ í tilefni af herferðinni sem vakið hefur mikla athygli. Í ræðunni talaði hún meðal annars um hversu óvinsæll femínismi virðist vera og gerir það verkum að konur velja að skilgreina sig ekki sem femínista. Ræðuna má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×