Innlent

„Er þetta hættulegt? Ættum við ekki að færa okkur?“

Samúel Karl Ólason skrifar
Ísjakinn sem endasteyptist var nokkuð stór.
Ísjakinn sem endasteyptist var nokkuð stór.
Nokkrir ferðamenn upplifðu mikið sjónarspil á Jökulsárlóni í vikunni. Þau voru á siglingu um lónið þegar stór ísjaki endasteyptist. Við hamaganginn mynduðust öldur og spurðu ferðamennirnir hvort að þetta gerðist oft og hvort þetta væri hættulegt.

Jökulsárlón er einn fjölfarnasti ferðamannastaður Íslands og talið er að þangað komi rúmlega 40 prósent þeirra erlendu ferðamanna sem heimsækja landið. Áætlað er að árið 2014 hafi 394 þúsund gestir komið að Jökulsárlóni.

Atvik þar sem öryggi ferðamanna eru í hættu í og við lónið koma reglulega upp.

Fyrr á árinu festust allt að fimmtíu ferðamenn á ísjaka á lóninu. Þau höfðu farið út á ísinn til að reyna að skoða selaþyrpingu sem var um 200 til 300 metra frá landi og rak jakinn frá landi. Börn voru í hópnum.

Þá sagði Einar Björn Einarsson, staðahaldari við Jökulsárlón, að ekki væri hlaupið að því að tryggja öryggi ferðamanna. Lónið væri rúmir 30 ferkílómetrar og nauðsynlegt væri að „höfða til almennrar skynsemi fólks“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×