Innlent

„Ég tel að Hanna Birna komist í gegnum þetta mál"

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Augljóslega er þetta mjög óþægileg staða fyrir ráðherra en mér finnst hún hafa brugðist vel við,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, í samtali við Sigurjón M. Egilsson í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni. 

Bjarni ræddi þar um Lekamálið svokallaða en ríkissaksóknari hefur tilkynnt Gísla Frey Valdórssyni, aðstoðarmanni Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra, að hann verði ákærður fyrir að leka minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos úr ráðuneytinu í fjölmiðla.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, hefur beðið forsætisráðherra að þau málefni sem undir hana heyra og hafa með dómsstóla og ákæruvald að gera færist til annars ráðherra í ríkisstjórn á meðan dómsmál á hendur Gísla.

„Það er ljóst að sá sem er undir ákæru getur ekki starfað lengur í ráðuneytinu. Ég tel það hafa verið skynsamlegt af Hönnu að biðjast undan þeim málum og málaflokkum sem tengjast saksókn og meðferð dómsstóla, það held ég að hafi verið rétt viðbrögð.“

„Það hefur ekkert komið fram í málinu sem dregur fram einhvern ásetning af ráðherrans hálfu eða eitthvað um vitneskju hennar um þetta lekamál, þvert á móti. Ég tel að það hafi ekkert komið fram í þessu máli sem geri það augljóst að hún stígi alfarið til hliðar.“

Bjarni segir að hann hafi sjálfur verið í þeirri stöðu að þrýst hafi verið á hann að stíga til hliðar.

„Ég tel að Hanna Birna komist í gegnum þetta mál, það er mín spá. Mér finnst ég ekki geta farið fram á það við Hönnu Birnu, sem formaður flokksins, að hún stígi til hliðar og sérstaklega þegar ekkert liggur fyrir um beina aðkomu ráðherra að málinu.“

„Í hvert sinn sem eitthvað nýtt kemur fram í þessu máli þá kemur alltaf fram ákall um traustyfirlýsingu. Ég mun ekki taka þátt í þeim leik, það er ljóst að ráðherra sem situr í ríkisstjórn nýtur trausts.“

Bjarni segir það sína skoðun að það hafi jafnvel verið gengið of langt í sameiningu ráðuneytanna.

„Þess vegna eru við til að mynda með tvo ráðherra í velferðaráðuneytinu. Mér finnst að það þurfi að koma til skoðunar hvort við kljúfum það ráðuneyti og höfum annars vegar heilbrigðisráðuneyti og hinsvegar félags-og húsnæðismálaráðuneyti. Mér finnst að mörgu leyti það sama um innanríkisráðuneytið að það hafi ekki tekist neitt sérstaklega vel að setja saman þá málaflokka sem þar eru að finna.“

Bjarni segist vera talsmaður þess að skoða á ný að koma á fót sérstöku dómsmálaráðuneyti.

„Við munum skoða það í rólegheitum og ég er ekkert að boða einhverjar aðgerðir í vikunni en mér finnst vera full ástæða að skoða það.“

Aðspurður hvort Bjarni Benediktsson vilji fá þann hluta Innanríkisráðuneytisins, sem Hanna Birna hefur sagt sig frá, á sitt borð svarar hann;

„Ég hef svosem alveg nóg á minni könnu. Við þurfum bara að ræða hvernig við leysum úr þessari beiðni.“

„Með þá eiginleika sem Hanna Birna býr yfir þá geti hún mjög auðveldlega unnið aftur upp traust og náð sér á strik. Hefur þetta skaðað hana tímabundið? Já en aðalatriðið í þessu máli er að það er ekkert fram komið sem tengir hana beint við það brot sem er hér ákært útaf.“


Tengdar fréttir

„Þetta er grafalvarlegt mál“

Formaður Samfylkingarinnar segir að það undirstriki mikilvægi lekamálsins að umboðsmaður vilji nánari skýringar.

Lekamálið snýst um okkur

Lekamálið snýst ekki um að undarlegt sé að sumir hælisleitendur séu með fölsuð skilríki eins og skilja má á Brynjari Níelssyni.

Ráðherra biðst undan dómsmálum

Innanríkisráðherra hefur farið fram á að vera leystur undan skyldum sínum sem ráðherra dómsmála meðan ákæra gegn Gísla Frey Valdórssyni er til meðferðar hjá dómstólum.

Á ráðherra að vera eða fara?

Lekamálið sem svo hefur verið kallað hefur vakið spurningar um hvort innanríkisráðherra hefði átt að víkja í tengslum við lögreglurannsókn sem beinst hefur að ráðuneytinu. Tilefnið er skjal með persónuupplýsingum sem ráðuneytið bar ábyrgð á að kæmu ekki fyrir almenningssjónir. En það gerðist og sú gáta er óleyst.

Tvísýn staða Hönnu Birnu

Skiptar skoðanir eru um stöðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þingmaður flokksins segir að staða Hönnu Birnu sé mjög veik.

Hanna Birna þarf að svara í dag

Í dag rennur út frestur innanríkisráðherra til að svara fyrirspurnum Umboðsmanns Alþingis í tengslum við lekamálið.

Satt og logið um siðareglur

Lekamálið í innanríkisráðuneytinu varð til þess í síðustu viku að fjölmiðlar hófu að spyrja um hvað orðið hefði af siðareglum þeim sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur samþykkti fyrir sína hönd árið 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×