Innlent

„Ég bíð bara við símann“

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Priyanka Thapa, nepölsk kona búsett hér á landi, hefur ekki enn heyrt frá fjölskyldu sinni eftir jarðskjálftann á laugardaginn og segist hafa þungar áhyggjur. Forsætisráðherra landsins óttast að allt að tíu þúsund manns hafi látist í skjálftanum. 

Eyðileggingin í Nepal er gríðarleg, tugþúsundir hafa misst heimili sín og fjöldi látinna og slasaðra hækkar dag frá degi. Björgunaraðgerðir eru enn í fullum gangi en ein og hálf milljón er án matar og drykkjarvatns, auk þess sem mikil þörf er á tjöldum og lyfjum.

Móðir Priyönku og systir búa í Katmandú en hún hefur ekkert heyrt frá þeim síðan skjálftinn reið yfir en hefur þó fengið óljósar upplýsingar um að það sé í lagi með þær.   

„Ég er búin að reyna að hringja frá því á laugardaginn, kannski þúsund sinnum, en hef ekker heyrt,“ segir hún.

Nær ekkert samband er á svæðinu en Priyanka vonar að fjölskylda hennar haldi til í neyðarskýlum í borginni. Undanfarna daga hefur hún fengið slæmar fréttir. Fimm vinir hennar létust í skjálftanum

„Þetta var mjög erfitt að heyra... ég er ennþá með þau á facebook.

Priyanka segist íhuga að fara út.

„Það sem vantar eru neyðarbyrgðir og ég er að hugsa að peningarnir sem ég myndi nota til að kaupa flugmiða gæti ég notað til að kaupa mat fyrir fullt af fólki í Nepal. Svo ég er að hugsa um hvernig er best að safna peningum til að senda,“ segir hún og vonast til að heyra í fjölskyldu sinni um leið og samband batnar á svæðinu.

„Ég bíð bara hér við símann til að ná sambandi og heyra frá mömmu minni og systur og heyra að það sé allt í lagi. Það er það sem mig langar að heyra“. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×