Viðskipti innlent

„Eðlilegt að Mjólka greiddi hærra verð“

Sveinn Arnarsson skrifar
Einar Sigurðsson, forstjóri MS. Mjólkursamsölunni er gert að greiða 370 milljónir í stjórnvaldssekt vegna samkeppnislagabrota.
Einar Sigurðsson, forstjóri MS. Mjólkursamsölunni er gert að greiða 370 milljónir í stjórnvaldssekt vegna samkeppnislagabrota. Mynd/Mjólkursamsalan
Samkeppniseftirlitið úrskurðaði á dögunum að Mjólkursamsölunni væri gert að greiða stjórnvaldssekt að upphæð 370 milljónir króna fyrir brot á 11. grein samkeppnislaga. Þar er skýrt kveðið á að misnotkun á markaðsráðandi stöðu sé bönnuð. Mjólkursamsalan sættir sig ekki við þann dóm og mun áfrýja úrskurðinum til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Úrskurðurinn snýr að því að MS er óheimilt að selja aðilum á markaði hrámjólk á mismunandi verðlagi. Þeim er gert skylt að veita öllum sama verð.

Egill Sigurðsson, formaður Stjórnar MS, segir eðlilegt að Mjólka hafi greitt hærra verð en aðrir á markaði.Fréttablaðið/Auðunn
Úrskurður Samkeppniseftirlitsins nú er keimlíkur þeim sem féll árið 2006. Mjólka kvartaði árið 2005 til Samkeppniseftirlitsins. Þar tókust menn á um verð á undanrennudufti. Mjólku var boðið annað verð á þeirri framleiðsluvöru en öðrum aðilum á markaði. Þar var forvera Mjólkursamsölunnar, Osta- og smjörsölunni, bannað að mismuna aðilum á markaði með verð á undanrennudufti og bent á að þessir starfshættir brytu í bága við 11. grein samkeppnislaga. Nú átta árum síðar fellir Samkeppniseftirlitið aftur dóm þar sem líkir málavextir eru reifaðir og eftirlitið kemst að sömu niðurstöðu.

Egill Sigurðsson er formaður stjórnar Mjólkursamsölunnar. Hann telur dóm Samkeppniseftirlitsins vera byggðan á misskilningi. „Samkeppnislög eru lagabálkur sem við berum mikla virðingu fyrir. Við teljum okkur ekki hafa brotið gegn neinum og að Mjólkursamsalan hafi í hvívetna farið að þeim leikreglum sem henni eru settar.“

Egill telur einnig að aðrar leikreglur gildi fyrir fyrritæki innan samstæðu MS og annarra aðila á markaði. „Það skiptir máli að greina í sundur hvernig við flytjum mjólk innan samstæðunnar og þegar við seljum mjólk út úr kerfinu. Þetta er tvennt ólíkt. Það er ekkert óeðlilegt við það að selja öðrum framleiðendum mjólk á hærra verði en þegar við flytjum mjólk innan samstæðu MS,“ segir Egill. „Ég fullyrði að úrskurður Samkeppniseftirlitsins er byggður á misskilningi. Þetta er að okkar mati ný túlkun á búvöru- og samkeppnislögum.“

Ólafur M. Magnússon
Þessu er Ólafur Magnússon, fyrrverandi eigandi Mjólku, ekki alls kostar sammála. „Þessi málflutningur stenst ekki því dómurinn í vikunni er nokk skýr. Þetta eru aðskildir lögaðilar og það féll úrskurður um þetta árið 2006, um mjög sambærilega starfshætti. Þeim er ekki heimilt að mismuna aðilum eins og þeir gera.“

Egill býður alla nýja aðila velkomna á markaðinn og segir MS ekki standa í vegi fyrir neinum að fikra sig inn á markaðinn. „MS hefur verið legið á hálsi fyrir að vera á móti öðrum aðilum í greininni, það er af og frá og við fögnum allri samkeppni. Ný fyrirtæki geta keypt mjólk beint af bændum en þá verða þeir að greiða uppsett verð fyrir hana.“

Ólafi finnst hann hins vegar ekki hafa fengið að kynnast þessum hlýja faðmi Mjólkursamsölunnar. „Það er þvættingur að þeir bjóði nýja aðila velkomna. Þeir hafa markvisst og ítrekað drepið nýja aðila! Allir hafa lotið í gras í samkeppni við fyrirtækið. Það sýnir sagan og segir allt um stöðu MS og samskipti við minni aðila á markaði.“


Tengdar fréttir

Uggandi yfir athöfnum MS

„Markaðsmisnotkun er glæpur gagnvart neytendum og í því getum við ekki tekið þátt,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður, á Alþingi í dag.

Telur búvörulög skila árangri

Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, telur það kerfi sem við búum við í dag hafa skilað um tveimur milljörðum til neytenda árlega.

Höfðar skaðabótamál á hendur Mjólkursamsölunni

Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú ætlar að höfða skaðabótamál á hendur Mjólkursamsölunni í kjölfar úrskurðar Samkeppniseftirltisins um að MS hafi brotið samkeppnislög.

Samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar kalli á endurskoðun búvörulaga

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að samkeppnislagabrot Mjólkursamsölunnar kalli á tafarlausa endurskoðun búvörulaga. Hann segir ljóst að neytendur hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þessa og segir nauðsynlegt að Mjólkursamsölunni verði gert að keppa á sömu forsendum og aðrir.

Áætlar tjón sitt 200 milljónir króna vegna brota MS

Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú og stofnandi Mjólku áætlar að fyrirtæki á sínum vegum hafi tapað 200 milljónum króna vegna samkeppnisbrota Mjólkursamsölunnar (MS).

MS sektað um 370 milljónir króna

Samkeppniseftirlitið lítur brot MS á samkeppnislögum alvarlegum augum. Niðurstaðan kemur fyrirtækinu á óvart og hyggst það áfrýja málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×