Lífið

Zach Braff bræðir hjarta aðdáanda síns

Zach Braff
Zach Braff Vísir/Getty
Zach Braff gerði myndband til þess að þakka aðdáanda sínum stuðninginn í gegnum árin.

„Hæ Mattias, þetta er Zach Braff,“ sagði Scrubs-stjarnan í myndbandinu.

„Ég get ekki beðið eftir að hitta þig einn daginn. Þú ert ástæða þess að ég hef gert allt sem ég hef gert um ævina.“

Mattias horfði á Scrubs alla daga í mörg ár og var að vonum ánægður með myndbandið.

„Vinur minn endaði einhvernveginn í bíl með honum og ég fékk þetta myndband sent í kjölfarið. Ég brosi út að eyrum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×