Tónlist

Yoko Ono og David Guetta endurgera Imagine

Samúel Karl Ólason skrifar
Raddir þúsunda heyrast í myndbandinu.
Raddir þúsunda heyrast í myndbandinu.
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna kynnti í dag nýja útgáfu af Imagin, lagi John Lennon. Lagið er unnið af Yoko Ono og David Guetta og heyrast raddir þúsunda manna frá 140 löndum í laginu.

Einnig heyrist í velgjörðasendiherrum UNICEF eins og Katy PerryShakiraPriyanka ChopraPau GasolDaniela Mercury og ýmsum stjörnum úr tónlistarbransanum, íþróttum og kvikmyndum. Þar á meðal eru Neymar JrWill.i.am og Idris Elba.

Lagið endar á því að geimfarinn Samantha Cristoforetti syngur lagið í Alþjóðlegu geimstöðinni með jörðina í baksýn.

Markmiðið með myndbandinu er að auka samúð og benda á baráttu UNICEF fyrir þau 50 milljón börn sem hafa verið rifin upp með rótum og þurft að flýja ýmsar hörmungar.

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á vefnum Vast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×