Innlent

Yfirmenn lögreglu á fundi í Hvalfirði þegar upp úr sauð

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Eftir nokkra mánaða mótmæli sauð upp úr við þingsetningu 20. janúar 2009.
Eftir nokkra mánaða mótmæli sauð upp úr við þingsetningu 20. janúar 2009. Vísir/Anton
Nokkrir yfirmenn lögreglu sátu fund í Hvalfirði þegar upp úr sauð í Búsáhaldabyltingunni fyrir setningu Alþingis í janúar 2009. Lögreglustjóra hafði þó verið bent á hugsanlega væri rétt að senda þá ekki út úr bænum á þessum tímapunkti.

Þetta kemur fram í samantekt á skipulagi lögreglunnar í búsáhaldabyltingunni. Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, sá um að vinna samantektina en þar er farið yfir mótmæli á árunum 2008-2011.

Haustið 2008 tók hópur fólks að mótmæla stjórnvöldum og þeim veruleika sem blasti við eftir hrunið. Eftir nokkra mánaða mótmæli sauð upp úr við þingsetningu 20. janúar 2009. Þá söfnuðust þúsundir manna saman fyrir framan Alþingi.

Í skýrslunni er sagt frá því að þann dag hafi yfirlögregluþjónn almennrar löggæslu, ásamt aðstoðaryfirlögregluþjónum þeirrar deildar verið sendir á ársfund sem haldinn var í Hvalfirði. Sú spurning var borinn upp við Stefán Eiríksson lögreglustjóra hvort að rétt væri að hætta við fundinn vegna þingsetningarinnar og væntanlegra mótmæla en hann hafi ákveðið að halda fundinn þar sem nægur fjöldi stjórnenda væri til staðar.

Mótmælendur hófu að safnast saman við Alþingishúsið um morguninn og stóðu mótmælin þar til fimm morguninn eftir. Í skýrslunni segir að mikið mæddi á lögreglumönnum og stjórnendum aðgerða en kalla þurfti til sérsveit og mannskap frá lögreglunni á Suðurnesjum til að aðstoða. Alls tóku ríflega tvö hundruð lögreglumenn þátt í aðgerðunum.

Í skýrslunni er lýst upplifun lögreglumanna af mótmælunum en töldu þeir mótmælendur hafa verið óvenju herskáa og því hafi þeir beitt piparúða og kylfum. Þá segja þeir þreytu og máttleysi hafa sagt til sín enda voru þeir án matar og drykkjar allan daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×