Bílar

Yfirmenn Honda taka á sig launalækkun vegna afturkallana

Finnur Thorlacius skrifar
Honda Jazz.
Honda Jazz.
Yfirleitt taka yfirmenn fyrirtækja ekki á sig mikla ábyrgð vegna mistaka. Þannig er þetta ekki á bæ Honda í Japan. Þar hafa yfirmenn nú tekið á sig allt að 20% launalækkun vegna afturköllunar á Honda Jazz bílnum, en bílar af þeirri gerð hafa 5 sinnum verið afturkallaðir vegna galla í bílunum.

Þessir gallar hafa ekki orðið til slysa eða dauðsfalla, en hefur engu að síður kostað Honda mikið. Yfirmaður framleiðslu Honda Jazz lækkar í launum um 20% og 10 undirmenn hans taka á sig 10% launalækkun vegna gallanna. Þá hefur Honda búið til ný störf til að gæta að gæðum sinna bíla í kjölfar þessara afturkallana.

Það er ekki tekið út með sældinni að gera mistök við vinnu sína í Japan og mættu vestrænar þjóðir ef til vill taka þessa afstöðu þeirra til fyrirmyndar.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×