Innlent

Yfirmaður Landsíma staðfestir hlerun, segir Jón Baldvin

Að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar staðfesti fyrrverandi yfirmaður hjá Landssímanum í gærkvöld að sími Jóns var hleraður í ráðherratíð hans.

Áður hafi Jón Baldvin talið víst að bandarískir njósnarar stæðu að baki og til lítils að greina samráðherrum í Sjálfstæðisflokknum frá málinu. Hann hafi ekki þá vitað af tilvist íslensku leyniþjónustunnar.

Sú sérkennilega staða er komin upp að leiðtogar stjórnarflokka Viðeyjarstjórnarinnar 1991-95, þeir Jón Baldvin Hannibalsson og Davíð Oddsson deila óvægið opinberlega um meinta hlerun á símum Jóns Baldvins á ráðherraárum hans. Á sunnudag greindi Jón Baldvin frá því að sími hans í utanríkisráðuneytinu - sem þá var til húsa á efstu hæð lögreglustöðvarinnar - hafi verið hleraður árið 1993. Davíð Oddsson, f.v. forsætisráðherra gerði lítið úr þessum fullyrðingum á Stöð 2 í gær og taldi þær augljóslega firru - og benti á að símarnir hefðu verið hreinsaðir af sérfræðingum NATO árlega.



Í morgunútvarpsþætti Jóhanns Haukssonar á útvarpi Sögu í morgun bætist í þessa sögu - segir Jón Baldvin frá því að í gærkvöld hafi hringt í sig fyrrverandi yfirmaður á tæknisviði Landsímans og staðfest að hann hafi orðið vitni að því að sími Jóns var hleraður. Þetta hafi verið á ráðherraárum Jóns Baldvins, en hann var ráðherra árin 1987-95. Hefði manninum ofboðið afneitun Davíðs í viðtali á Stöð 2 í gærkvöld og talið að samvisku sinnar vegna gæti hann ekki þagað lengur.

Griendi maðurinn frá því að í tækniveri Landsímans hafi maður setið löngum stundum, vikur og mánuði og haft þann starfa einan að hlusta. Eitt skipti þegar hann hafi brugðið sér frá hafi heimildarmaðurinn hlustað í tækin og heyrt samtal á milli Jóns Baldvins og annars manns. Segir Jón Baldvin að heimildarmaðurinn muni á síðari stigum staðfesta þessa frásögn opinberlega.

Það var annar maður með tækniþekkingu sem komst að því að sögn Jóns að síminn á ráðherraskrifstofunni var hleraður árið 1993. Sá maður mun ekki stíga fram af ótta við skoðanakúgun í samfélaginu - að sögn Jóns. En menn undrast það að Jón greindi ekki nánasta samstarfsmanni sínum í ríkisstjórninni Davíð Oddssyni frá þessari hlerun. Skýringin var sú segir Jón að hann taldi þá að Bandarískir agentar væru að hlera símann - og umkvörtun um slíkt hefði lítinn hljómgrunn fengið meðal Sjálfstæðismanna. Taldi Jón Baldvin að þeir menn sem fengnir voru til þess árlega á vegum NATO að kanna hvort ráðherrasímar væru hleraðir hefðu komið tækjunum fyrir. Lítið hefði þýtt að bera slíkar sakir á borð samráðherra úr Sjálfstæðisflokknum.

Jón Baldvin segir að þetta hlerunarmál - og önnur - verði að upplýsa. Ekki síst nú þegar fyrir liggi vilji dómsmálaráðherra á því að lögfesta tilvist leyniþjónustu á Íslandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×