Yfirlýsing vegna kæru á hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni

Fréttablaðið Aðsendar greinar 13. desember 2011 06:00
Yfirlýsing vegna kæru á hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni
Undanfarna daga hefur hart verið tekist á um mál Bjarna Randvers Sigurvinssonar, stundakennara við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Þótt útilokað sé að greiða úr öllum flækjum í svo stuttri umfjöllun er rétt að rekja hér mikilvægustu ágreiningsatriði málsins.

Deilan er flókin vegna þess hve umfangsmikil hún er, en rökræðurnar á síðustu dögum hafa ekki síður snúist um aukaatriði en aðalatriði og stundum falið í sér hreinar rangfærslur.

Meginatriði málsins eru þó einföld. Strax í upphafi kæruferlisins, snemma árs 2010, braut Siðanefnd Háskóla Íslands á rétti stundakennara við HÍ með svo alvarlegum hætti að hún spillti málinu öllu. Siðanefnd lagði fram sáttatillögu þar sem fallast átti á sekt kennarans án samþykkis hans. Þetta gerðist áður en siðanefndin hafði aflað sér gagna í málinu og var kennaranum með öllu haldið utan við málsmeðferðina.
Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kennarinn hafi á neinn hátt gerst brotlegur við siðareglur HÍ. Fyrir liggja yfirlýsingar frá sjö nemendum er sátu námskeið Bjarna um nýtrúarhreyfingar og segja þau öll kennsluna hafa verið til fyrirmyndar, hvergi hafi verið hallað á Vantrú eða aðrar trúleysishreyfingar. Þessar yfirlýsingar eru studdar af greinargerðum tíu sérfræðinga í túlkunarvísindum sem allir lýsa því yfir að ekkert sé út á kennsluglærur Bjarna Randvers að setja. Margir þessara sérfræðinga þekktu ekkert til Bjarna áður en þeir skrifuðu greinargerðir sínar.

Síðast en ekki síst fóru svo fjörutíu háskólakennarar yfir þau málsgögn sem lágu fyrir og komust að þeirri niðurstöðu að Bjarni hefði ekki á neinn hátt gerst brotlegur við siðareglur og að ekkert tilefni væri til að gagnrýna kennslugögn hans í námskeiðinu.

Skýrsla rannsóknarnefndar þeirrar sem háskólaráð skipaði er alvarlegur áfellisdómur um vinnubrögð siðanefndarinnar, sem því miður tók afstöðu gegn Bjarna Randveri með sáttatillögu þar sem Guðfræði- og trúarbragðafræðideild átti að „viðurkenna og harma, að kennsluefnið feli ekki í sér hlutlæga og sanngjarna umfjöllun um félagið Vantrú, málstað þess og einstaka félagsmenn". Kærandinn fékk sáttatillöguna í hendur og hefur beitt henni í opinberum málflutningi sínum enda þótt tillögunni væri með öllu hafnað á kennarafundi Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar.

Af máli ýmissa Vantrúarfélaga má ráða að gagnrýni háskólamanna á meðferð kærumálsins beinist gegn Vantrú og einstaklingum sem styðja þau samtök. Það er rangt. Gagnrýnin beinist að vinnuaðferðum siðanefndar í málinu. Einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum hlýtur að vera frjálst að gagnrýna það sem fram fer innan veggja HÍ, en að sama skapi ber skólanum sem akademískri stofnun að standa vörð um það mikilvæga starf sem þar fer fram og vernda starfsmenn sína fyrir óréttmætum ásökunum og óeðlilegum þrýstingi.

Eða eiga stjórnmálaflokkar, hagsmunasamtök, þrýstihópar og aðrir utanaðkomandi aðilar að geta stýrt því hvernig fjallað er um þá í háskólakennslu? Ættu til dæmis bankamenn að athuga allar glærur sem notaðar eru til að ræða um siðfræði í tengslum við bankahrunið?

Að þessu sögðu er rétt að benda á að kennsluglærur Bjarna Randvers reyna á engan hátt á mörk akademísks frelsis þótt slíkt hafi verið gefið í skyn. Að sögn nemenda í námskeiði Bjarna var kennslan á engan hátt ögrandi og tilvitnanir á glærum voru í eðlilegu fræðilegu samhengi. Gagnrýni formanns siðanefndar HÍ í Morgunblaðinu 8. des. sl. er sorglegur vitnisburður um þekkingarleysi á því hvað felst í kennslu á sviðum hug- og félagsvísinda.

Ef siðanefnd HÍ telur að í kennsluglærum Bjarna sé að finna ámælisverð atriði má allt eins hætta að nota glærur í kennslu við Háskóla Íslands, kennarar geta látið vera að setja glærur sínar á vefsíður námskeiða, og hverfa má frá að taka upp kennslustundir fyrir fjarnema. Því þá er sýnt að í framtíðinni verður enginn kennari lengur óhultur fyrir kærum utan úr bæ, enda líklega hægt að finna eitthvað sem einhver er ósammála í glærupökkum flestallra kennara á Íslandi, hvort sem þeir kenna við HÍ eða aðra skóla landsins.

Slíkt ástand væri ekki aðeins gríðarleg afturför í allri kennslu heldur hreinlega aðför að öllu skólastarfi í landinu.

Virðingarfyllst,

Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt og fagstjóri fræðigreina í myndlistardeild LHÍ,
Annadís Rúdólfsdóttir, námsstjóri Alþjóðlega jafnréttisskólans,
Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í samstæðilegri guðfræði,
Ari Páll Kristinsson, rannsóknarprófessor, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum,
Arnar Þór Jónsson, hrl., sérfræðingur við Lagadeild HR,
Auður H. Ingólfsdóttir, lektor og sviðsstjóri félagsvísindasviðs Háskólans á Bifröst
Auður Ólafsdóttir, lektor í listfræði
Ágúst Einarsson, prófessor í hagfræði og fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent viðskiptafræðideild
Ármann Jakobsson, dósent íslenskum bókmenntum
Ásdís Egilsdóttir, prófessor í íslenskum miðaldabókmenntum
Ásdís Guðmundsdóttir, kennslustjóri Hugvísindasviði
Ásdís R. Magnúsdóttir, prófessor í frönsku máli og bókmenntum og forseti deildar erlendra tungumála
Áslaug Helgadóttir, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands
Baldur Hafstað, prófessor við Menntavísindasvið
Baldur Sigurðsson, dósent við Menntavísindasvið
Benedikt Hjartarson, aðjúnkt í almennri bókmenntafræði
Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum
Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor í annarsmálsfræðum
Björn Erlingsson, aðjúnkt í eðlisfræði hjá Keili
Björn Ægir Norðfjörð, lektor í kvikmyndafræði
Dagný Kristjánsdóttir, prófessor og forseti Íslensku- og menningardeildar
Dögg Pálsdóttir, aðjúnkt við lagadeild HR
Egill Benedikt Hreinsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði
Einar Sigurbjörnsson, prófessor í guðfræði
Eiríkur Bergmann, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði
Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknastjóri Hugvísindasviði
Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólann á Bifröst
Erla Erlendsdóttir, dósent í spænsku máli og bókmenntum
Gauti Kristmannsson, dósent í þýðingafræði
Geir Sigurðsson, dósent í kínverskum fræðum
Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði
Gísli Sigurðsson, rannsóknaprófessor við Árnastofnun og stundakennari í þjóðfræði
Gottskálk Jensson, prófessor í almennri bókmenntafræði
Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor í frumulíffræði
Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði
Guðmundur Ólafsson, lektor Viðskiptadeild HÍ og Háskólans á Bifröst
Guðni Elísson, prófessor í almennri bókmenntafræði
Guðrún Kvaran, prófessor á Hugvísindasviði og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Guðrún Þórhallsdóttir, dósent í íslenskri málfræði
Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor í guðfræði og ritskýringu Gamla testamentisins
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, dósent í almennri bókmenntafræði
Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir, fagstjóri og lektor í grafískri hönnun við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands
Hanna Óladóttir, aðjúnkt í íslensku
Haraldur Bernharðsson, sérfræðingur við Hugvísindastofnun
Haukur Ingi Jónasson forstöðumaður MPM-máms tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði
Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor í spænsku
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið
Hrefna Marín Gunnarsdóttir, lektor í rafmagns- og tölvuverkfræðideild
Hulda Stefánsdóttir, prófessor Myndlistadeild LHÍ
Höskuldur Þráinsson, prófessor í íslensku nútímamáli
Ingibjörg Ingvadóttir, lektor í lögfræði við Háskólann á Bifröst
Irma Erlingsdóttir, lektor í frönskum samtímabókmenntum
Jón Ma. Ásgeirsson, prófessor í nýjatestamentisfræðum
Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði
Jón G. Friðjónsson, prófessor í íslensku sem öðru máli
Jón Hallsteinn Hallsson, dósent við Auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands og aðjúnkt við Læknadeild Háskóla Íslands
Jón Axel Harðarson, prófessor í íslenskri málfræði
Jón Karl Helgason, dósent í íslensku sem öðru máli
Jón Freyr Jóhannsson, aðjúnkt í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst
Jón Hilmar Jónsson, rannsóknarprófessor, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Jón Ólafsson prófessor í heimspeki og aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst
Jörgen L. Pind, prófessor í sálfræði
Kristinn Ólason, framkvæmdastjóri OTSEM, alþjóðlegra samtaka um doktorsnám í G.t.-fræðum, Guðfræði- og trúarbragðadeild
Kristín Guðrún Jónsdóttir, aðjúnkt í spænskum og rómönsk-amerískum fræðum
Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði
Kristján Árnason, prófessor í íslenskri málfræði
Kristján Kristjánsson, Forstöðumaður Rannsóknarþjónusta HR
Magnús Þorkell Bernharðsson, dósent í sagnfræði og forstöðumaður alþjóðamáladeildar Williams College, gistikennari við Guðfræði- og trúarbragðadeild HÍ
Magnús Fjalldal, prófessor í ensku
Magnús Snædal, prófessor í almennum málvísindum
Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Margrét Jónsdóttir, prófessor í íslensku sem öðru máli
Marion Lerner, aðjúnkt í þýðingafræði
Njörður Sigurjónsson, lektor í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst
Oddný G. Sverrisdóttir, prófessor í þýsku
Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík
Pétur Knútsson, dósent í enskum málvísindum
Pétur Pétursson, prófessor í guðfræði
Ragnar Ingi Aðalsteinsson aðjúnkt í íslensku
Rannveig Sverrisdóttir, lektor í táknmálsfræði
Rebekka Þráinsdóttir, aðjúnkt í rússnesku
Rúnar Helgi Vignisson, lektor í ritlist
Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ
Sigfinnur Þorleifsson, lektor í sálgæslu
Sigríður Magnúsdóttir, dósent við Læknadeild
Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í íslenskri málfræði
Sigrún Birgisdóttir, lektor og fagstjóri í arkitektúr við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands
Sigurður Konráðsson prófessor í íslenskri málfræði
Sigurður Pálsson, doktor í menntunarfræðum, fyrrv. kennari við KHÍ og guðfræðideild
Sigurjón Baldur Hafsteinsson, lektor í safnafræði
Sigurlína Davíðsdóttir prófessor í uppeldis- og menntunarfræði
Snæfríður Baldvinsdóttir, aðjúnkt við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst
Sólveig Anna Bóasdóttir, forseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar
Stefán Kalmansson aðjúnkt í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst
Svanhildur Óskarsdóttir, rannsóknadósent við Árnastofnun
Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði
Sveinn Eggertsson, lektor í mannfræði
Sverrir Tómasson, rannsóknarprófessor handritasviði Stofnunar Árna Magnússonar
Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði
Valdimar Tr. Hafstein, dósent í þjóðfræði
Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði
Þorbjörn Broddason, prófessor í félagsfræði
Þórður Ingi Guðjónsson, ritstjóri og stundakennari við HÍ
Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði
Æsa Sigurjónsdóttir, lektor í listfræði

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Komdu út að leika

Við fögnum Degi barnsins í fimmta sinn á morgun en samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar frá því...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Að draga börn fyrir dómstóla

Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, hvetur til umræðu um hælisleitendur...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Orð forsetans um "skrautdúkku“

Ólafur Ragnar Grímsson steig fram á svið kosningabaráttunnar nýlega með orðræðu sem um mar...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Yfirlýsing vegna kæru á hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni