Lífið

Yfirhönnuður Louis Vuitton kíkti í JÖR

Baldvin Þormóðsson skrifar
Kim Jones er yfirhönnuður karlmannafatnaðar Louis Vuitton.
Kim Jones er yfirhönnuður karlmannafatnaðar Louis Vuitton. vísir/getty
Fatahönnuðurinn Kim Jones er yfirhönnuður karlmannafatnaðar hjá franska tískumerkinu Louis Vuitton.

Hönnuðurinn var staddur á Íslandi á dögunum ásamt myndarlegu fylgdarliði en aðilar á vegum tískumerkisins, ásamt Jones, voru að taka myndir við Mývatn, þá líklegast fyrir næstu fatalínu tískumerkisins.

Yfirhönnuðurinn hefur þó átt einhvern tíma aflögu til þess að gera sér ferð í verslun Guðmundar Jörundssonar fatahönnuðar sem setti á fót sitt eigið tískumerki, JÖR, fyrir rúmlega ári. Bað Jones sérstaklega um að fá að spjalla við Guðmund.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×