Innlent

Yfirfull fangageymsla í Eyjum í nótt

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Blysin í gærkvöldi
Blysin í gærkvöldi vísir/óskar
Fangageymslan í Vestmannaeyjum var yfirfull í gærnótt. Yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum segir flesta hafa verið læsta inni vegna ölvunar. Einn hafi gist fangageymslur vegna líkamsárásar, sú hafi ekki verið alvarleg og þolandinn eigi eftir að ákveða hvort hann leggi fram kæru.

Sjötíu fíkniefnamál komu upp á hátíðinni og helst var um að ræða örvandi efni á borð við amfetamín, kókaín og e-töflur.

Hátíðargestir munu flestir koma sér heim í dag og minnir lögreglan fólk á að vera visst um að vera ekki undir áhrifum áfengis ef það ætlar sér að setjast undir stýri. Fólk er beðið um að blása í áfengismæli en mælar verða bæði í Eyjum og Landeyjahöfn. Engin svör fást um hvort kynferðisbrot hafi verið framin í Eyjum.

Frá Einni með öllu á Akureyri.mynd/halldór kjartansson
Á Akureyri lauk helginni vel en þar fór Unglingalandsmót UMFÍ og útihátíðin Ein með öllu fram. Tvö minniháttar fíkniefnamál komu upp auk eins ölvunaraksturs og annars undir áhrifum fíkniefna. 

Á Siglufirði fór Síldarhátíð fram og er talið að um þrjú þúsund manns hafi verið samankomnir á hátíðinni. Að sögn varðstjóra komu engin mál upp og aðeins þurfti að hafa afskipti af fólki vegna smá pústra sem hægt var að leysa á staðnum.

Ein líkamsárás var kærð til lögreglunnar á Neskaupsstað og fjórir voru teknir með eiturlyf í fórum sínum. Að sögn Jónasar Wilhelmssonar yfirlögregluþjóns var talsverður erill og var lögreglan að störfum fram undir morgun en ekkert umfram það sem við var að búast. Hann vill koma á framfæri þakklæti til þeirra sem sóttu hátíðina.

Hátíðahöld fóru vel fram á Ísafirði í gærdag og nótt og fangageymsla lögreglun tóm. Fáein fíkniefnamál komu upp og helst voru kannabisefni gerð upptæk. Engin kynferðisbrot hafa verið tilkynnt og engar líkamsárásir. Það var nokkuð um ölvun og mikill erill gesta en enginn sérstakur ófriður að mati lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×