Lífið

X-Factor: Herbergisfélaginn óvart á brjóstunum í beinni

Myndskeið af atvikinu hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.
Myndskeið af atvikinu hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.
Herbergisfélagi breskrar konu sem var í Skype-viðtali í Xtra-factor, eftirspjallsþætti breska X-factor, birtist óvænt sjónvarpsáhorfendum ber að ofan í beinni útsendingu í gærkvöldi.

Herbergisfélaginn var greinilega ekki búinn að fá tilkynningu um að til stæði að hin breska Lara væri á leið í viðtal og birtist skyndilega fáklædd í bakgrunni.

Myndskeið af atvikinu hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og má sjá það að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×