Lífið

Will Smith skipuleggur tónleikaferð um heiminn

Birgir Olgeirsson skrifar
Will Smitth sendi frá sér nýtt lag í síðustu viku.
Will Smitth sendi frá sér nýtt lag í síðustu viku. Vísir/Getty
Will Smith sendi frá sér fyrsta lagið í áratug í síðustu viku og undirbýr nú tónleikaferð um heiminn. Þetta sagði leikarinn og rapparinn í viðtali við útvarpsmanninn Zane Lowe þar sem hann sagðist hafa verið töluvert ryðgaður þegar hann hóf upptökur á nýja laginu og var hræddur um hvernig því yrði tekið.

„Sem er klikkað því þegar þú hefur notið ákveðinnar velgengni ættir þú að vera fullur sjálfstrausts. En raunin er önnur.“

Hann segist vera með um 30 lög tilbúin til útgáfu og sagðist vera nokkuð viss um að hann leggi í tónleikaferð næsta sumar með DJ Jazzy Jeff.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×