Innlent

Vona að hljóðbækur með texta minnki brottfall úr framhaldsskólum

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Notendur hljóðbókasafnsins eru um átta þúsund í dag að sögn Þóru Sigríðar Ingólfsdóttur, forstöðumanns safnsins.
Notendur hljóðbókasafnsins eru um átta þúsund í dag að sögn Þóru Sigríðar Ingólfsdóttur, forstöðumanns safnsins.
Alþjóðadagur bóka og höfundarréttar er haldinn hátíðlegur í dag. Það var Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sem áttu frumkvæðið að því að gera þennan dag, 23. apríl, að alþjóðadegi bóka.

Hefðbundnar bækur, kiljur og innbundnar bækur, eru eflaust það sem flestum kemur fyrst í hug þegar fjallað er um bækur. En tímarnir breytast. Fréttablaðið fjallaði meðal annars um það í dag að nú hafa bókasafnsfræðingar skorað á stjórnvöld að breyta höfundarréttarlögum svo að bókasöfn geti lánað út rafbækur.

Síðan eru þeir til sem ekki getað lesið bækur sjálfir vegna sjónleysis eða lestrarörðugleika. Í þjónustumiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda geta þeir sem á þurfa að halda fengið bætur með blindraletri.

Hljóðbókasafn Íslands býður síðan upp á hljóðbækur. Notendur bókasafnsins geta hlaðið bókunum niður af vefsíðu þess eða fengið lánaðar bækur á diskum.

Notendur hljóðbókasafnsins eru um átta þúsund í dag að sögn Þóru Sigríðar Ingólfsdóttur, forstöðumanns safnsins. 70 prósent þeirra eru lesblind og langstærsti hluti notendanna eru nemendur í framhaldsskólum.

„Sú ákvörðun var tekin í fyrra að allar námsbækur yrðu gerðar bæði með hljóði og texta,“ segir Þóra. Nemendurnir hlaða bókunum þá niður í ákveðnu forriti í tölvu og þá birtist textinn um leið og hann er lesinn. Einnig birtast skýringamyndir þegar það á við.

Hægt er að slá inn leitarorð. Sé nemandi til dæmis að lesa um ljóstillífun þá slær hann það orð inn og fær allar upplýsingar um ljóstillífun í þeirri bók sem hann er að lesa. „Það er því mjög auðvelt að ferðast í bókinni,“ segir Þóra.

Þessi nýjung auðveldar námið mjög fyrir lesblinda að hennar sögn. „Þetta er í samræmi við það sem er að gerast á hinum Norðurlöndunum.“

„Við teljum þetta miklar framfarir og vonum að þetta komi til með að minnka brottfall úr skóla að einhverju leyti. Þetta þyrfti þó að gerast fyrr á skólastiginu og áður en nemendur eru komnir í framhaldsskóla.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×