Innlent

Von á lægðum á færibandi í vikunni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Veður verður einna verst á fimmtudaginn.
Veður verður einna verst á fimmtudaginn. Mynd/Vilhelm
Búast má við lægðum á færibandi um allt land í vikunni. Verst verður veðrið á fimmtudaginn. Vorlegt segir vakthafandi veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.

„Það er lægðargangur í kringum landið. Þær hafa verið að fara suðurfyrir okkur og við höfum verið í rólegheitum að undanförnu en núna eru þær farnar að ganga nær okkur,“ segir vakthafandi veðurfræðingur.

Fyrsta lægðin gerir vart við sig á morgun og svo skella þær á landinu ein af annarri. Sú sem kemur á fimmtudaginn mun vera sú versta.

„Það verður eitthvað hringsól af lægðum yfir landinu á þriðjudag og miðvikudag en þær verða ekki alvarlegar. Fimmtudagurinn verður líklega versti dagurinn og svo virðist þetta ætla að halda áfram næstu helgi.“

Þesi lægðargangur er nokkuð venjulegur miðað við árstíð en vorloftið sunnar á norðurhveli er sökudólgurinn.

„Þetta er mjög algengt fyrir þennan árstíma að það sé óróleiki og lægðagangur upp Norður-Atlantshafið. Það er vissulega ekki komið vor hjá okkur en það er komið vor sunnar á norðurhveli og það er í raun það sem gerist. Loftið hitnar þar og þá fer að komast meiri hreyfing á það. Þetta er merki um að háloftakuldinn sé að gefa eftir.“

Veðurhorfur á landinu á morgun

Suðaustan 5-10 m/s austanlands til kvölds og slydda eða snjókoma með köflum, en suðvestan 3-10 vestantil og stöku él. Lægir og léttir til um tíma í nótt og frost að 8 stigum í innsveitum norðaustantil, en hiti í kringum frostmark víðast annars staðar. Gengur í suðaustan 15-20 fyrst suðvestanlands upp úr hádegi á morgun, með slyddu og síðan rigningu. Hægari vindur norðaustantil fram eftir degi og úrkomulítið. Hiti víða 0 til 4 stig á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Sunnan og suðvestan 5-13, skúrir og síðan él, en þurrt að mestu norðan- og austanlands. Kólnar og víða vægt frost um nóttina.

Á miðvikudag:

Norðaustan 10-15 með norðurströndinni og snjókoma með köflum, en fremur hæg breytileg átt annarsstaðar og þurrt að kalla um landið sunnanvert. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust með suðurströndinni.

Á fimmtudag:

Gengur í suðaustan hvassviðri eða storm með talsverðri rigningu, einkum sunnanlands. Frostlaust um tíma á láglendi víðast hvar.

Á föstudag:

Lítur út fyrir suðvestan hvassviðri eða stormur með éljum.

Á laugardag:

Líklega hvöss sunnanátt með rigningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×