Lífið

Völli Snær eldar ofan í ofurfyrirsætu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ofurfyrirsætan Chrissy Teigen er hér á landi um þessar mundir að sitja fyrir í auglýsingum fyrir UGG-stígvél.

Hún birtir mynd á Instagram af stjörnukokkinum Völundi Snæ þar sem hann sést matreiða súpu við sjávarsíðuna fyrir módelið.

„Sjávarsíðusúpa!! Súpa sem er bókstaflega búin til í pytti af eldfjallagrjóti. Ein svalasta lífsreynsla lífs míns. Takk @uppaustralia!“ skrifar Chrissy við myndina.

Chrissy er gift tónlistarmanninum John Legend og hefur starfað fyrir merki á boð við Nike, Gillette, Olay og Skullcandy. Þá hefur hún einnig reynt fyrir sér í sjónvarpi í þáttum á E!, TMZ og MTV.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×