Vitna leitað vegna sprengjunnar sem sprakk JHH skrifar 31. janúar 2012 17:14
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn hennar á sprengju sem fannst neðst við Hverfisgötu í Reykjavík í morgun. Aðili sem var á biðstöð fyrir strætisvagna neðst á Hverfisgötunni, fyrir klukkan sjö, er sérstaklega beðinn um að gefa sig fram. Aðrir, hvort sem þeir geta gefið upplýsingar um fólk eða ökutæki á þessu svæði á tímabilinu 6.30-7, eru einnig beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 en upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is. Sömuleiðis er hægt að koma nafnlausum ábendingum á framfæri í síma 800-5005. Staðfest er að sprengjan sprakk fyrir klukkan sjö í morgun, steinsnar frá stjórnarráðinu í Lækjargötu, en engan sakaði og sömuleiðis urðu engar skemmdir. Sprengjan var ekki öflug en hætta var þó á ferðum í nánasta umhverfi þar sem hún sprakk. Einnig er ljóst að sá eða þeir sem bjuggu hana til hafa þurft að búa yfir einhverri kunnáttu. Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum og er rannsókn þess í fullum gangi. Enn er enginn grunaður um verknaðinn en meðal þess sem lögreglan vinnur að er að yfirfara myndefni úr eftirlitsmyndavélum í miðborginni. Sprengjan er til frekari rannsóknar hjá tæknideild lögreglunnar. Eins og fram hefur komið þurfti að loka af hluta Hverfisgötunnar, eða frá Lækjargötu að Ingólfsstræti, eftir að þar fannst torkennilegur hlutur sem reyndist vera leifar af sprengju. Sprengjusveitir lögreglu og Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til og gerðu þær viðeigandi ráðstafanir. Lokun á Hverfisgötu var aflétt um hádegisbil.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira