Íslenski boltinn

Vítaspyrnukeppni og stórsigrar í Mjólkurbikarnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Selfoss er komið í 32-liða úrslit eftir dramatík fyrir austan fjall
Selfoss er komið í 32-liða úrslit eftir dramatík fyrir austan fjall vísir/hanna
Kári frá Akranesi er komið áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir stórsigur á Elliða úr Árbænum. Kári vann leikinn með 9 mörkum gegn einu.

Guðlaugur Þór Brandsson skoraði þrennu fyrir Kára í fyrri hálfleik og Alexander Már Þorláksson gerði einnig þrennu, fyrsta markið á 13. mínútu og seinni tvö í seinni hálfleik. Eggert Kári Karlsson, Marínó Hilmar Ásgeirsson og Hlynur Sævar Jónsson gerðu sitt markið hver.

Natan Hjaltalín átti mark Elliða.

Vítaspyrnukeppni þurfti til þess að knýja fram úrslit í leik Selfoss og Gróttu eftir að leikurinn var jafn 2-2 að lokinni framlengingu. Selfyssingar léku stóran hluta leiksins manni færri en Magnús Ingi Einarsson fékk raut spjald á 41. mínútu.

Heimamenn á Selfossi sigruðu í vítaspyrnukeppninni og eru því komnir áfram.

Inkassolið HK vann öruggan sigur á liði Álftaness með fimm mörkum. Ásgeir Marteinsson skoraði þrennu í leiknum fyrir HK. Hann opnaði markareikninginn á 13. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik. Ásgeir bætti við tveimur mörkum í sienni hálfleik og Hákon Þór Sófusson og Eiður Gauti Sæbjörnsson settu sitt markið hver í 5-0 sigri.

Leiknir Reykjavík komst áfram í næstu umferð með sigri á KH með tveimur mörkum gegn þremur.

Gunnar Francis Schram og Kolbeinn Kárason komu KH í tveggja marka forystu seint í fyrri hálfleik en Sólon Breki Leifsson lagaði stöðuna á síðustu mínútu fyrri hálfleiksins.

Aron Fuego Daníelsson byrjaði seinni hálfleik á að jafna leikinn og Sævar Atli Magnússon skoraði sigurmarkið á 75. mínútu.

Hamar sló Létti út með einu marki, Höttur vann þriggja marka sigur á Huginn, Þróttur Reykjavík sigraði Vængi Júpíters á útivelli og Njarðvík vann Kórdrengi.

Úrslit kvöldsins:

Kári - Elliði 9-1

HK - Álftanes 5-0

Vængir Júpiters - Þróttur R. 0-2

Kórdrengir - Njarðvík 0-2

Höttur - Huginn 3-0

Léttir - Hamar 0-1

KH - Leiknir R. 2-3

Selfoss - Grótta 2-2 (6-4 eftir vítaspyrnukeppni)

Þróttur V. - Víðir 1-2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×