Lífið

Vissi ekkert hvað hann væri að fara út í þegar hann leikstýrði hundi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hundurinn Astró fer á kostum í sumarherferð símafyrirtækisins Nova. Þar má sjá hann sitja til borðs og svara í símann eins og ekkert sé. Það var auglýsingastofan Brandenburg sem vann herferðina en ljósmyndarinn Ari Magg sá um að mynda og leikstýra auglýsingunni.

Hann segist ekki alveg hafa verið með það á hreinu hvað hann var að fara út í þegar hann tók að sér að leikstýra hundi.

„Við höfðum skoðað nokkur myndbönd á Youtube þar sem að hundar voru í aðalhlutverki og vorum ekkert endilega á því að þetta myndi ganga upp. Niðurstaðan var sú að fá í hlutverkið fallegan Golden Retriever og kom hann skemmtilega á óvart. Astró hlýddi skipunum mjög vel og fór hreinlega á kostum þann tæpa klukkutíma sem hann var í vinnunni,” segir Ari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×