Lífið

Vísir og öll þjóðin saman um Verslunarmannahelgina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Söfnum saman í góða sögu.
Söfnum saman í góða sögu.
Vísir í samvinnu við Watchbox mun fylgjast grannt með gangi mála um Verslunarmannahelgina og það á öllum vígstöðum.

Skemmtileg myndbönd eiga eftir að renna í gegnum spilarann hér að neðan og gefa lesendum Lífsins innsýn inn í allar þær hátíðir sem standa yfir um helgina.

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum verður líklega fyrirferðamikil en svo er aldrei að vita hvort við fáum myndbönd frá Mýrarboltanum eða frá Einni með öllu á Akureyri.

Það sem þarf að gera er að hala niður Watchbox smáforritinu í snjallsímann.

Þjónustan er aðeins í boði fyrir notendur  iPhone. Síðan þarf að elta #Verslunarmannahelgin  og þá ertu með á öllum útihátíðum á landinu.

Ef þú vilt deila þinni sögu þá ýtir maður á myndavélina í hægra horninu, tekur upp einhverja snilld, hakar í #Verslunarmannahelgin og eftir það fara þín myndbönd inn í sameiginlega sögu allra. Góður vettvangur til að búa til stórt og mikið myndband frá öllum vígstöðum á landinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×