Innlent

Vinsælar körfurólur hafa valdið tveimur alvarlegum slysum á Íslandi

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Svokallaðar körfurólur hafa valdið tveimur alvarlegum slysum hér á landi að undanförnu. Í báðum tilfellum var um að ræða börn undir átta ára aldri. Samskonar slys hafa einnig orðið í öðrum evrópuríkjum, þar af eitt banaslys.

„Það hefur náttúrulega komið í ljós ekki bara á Íslandi heldur í öðrum löndum á Evrópska efnahagssvæðinu að þær hafa valdið alvarlegum slysum og í einu tilfelli dauðaslysi,“ segir Herdís Storgaard, framkvæmdastjóri miðstöðvar slysavarna barna.

Átta ára drengur hryggbrotnaði

Nokkur slys hafa orðið af völdum rólanna hér á landi á undanvörnum tveimur árum þar sem um minniháttar áverka var að ræða. Þá hafa orðið tvö alvarleg slys. Fyrra slysið átti sér stað á síðasta ári en það seinna nú í sumar. Þá varð átta ára drengur fyrir rólu sem átta önnur börn sátu í. Hann fékk þungt högg á höfuð og brjóstkassa með þeim afleiðingum að hann dróst með ról­unni og lenti und­ir henni.



Mörg börn komast fyrir í sömu rólunni.
Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem í ljós kom að hann hafði hryggbrotnað og gekkst hann undir aðgerð vegna þess. Vakthafandi læknar höfðu orð á því við móður drengsins að þeir hefðu aldrei áður séð slíka áverka. Enn er erfitt að segja fyrir um hvaða afleiðingar ákverkarnir koma til með að hafa á drenginn til lengri tíma. 

Löglegar en í skoðun

„Hættan við þetta er rólan sjálf hún er svo þung að þegar þetta dynur svo á barninu, og það eru kannski fjögur, fimm, sex börn í rölunni nú þegar, þannig að það er ekkert undarlegt, lendi þetta á líkama barns að illa fari.“



Rólurnar eru löglegar samkvæmt núgildandi stöðlum en Herdís segir með öllu óá­sætt­an­legt að leik­tæki geti valdið alvarlegum slysum á börnum eða jafnvel dauðaslysum. Hún hefur sent athugasemdir til evrópskrar nefndar sem er að endurskoða staðla yfir sam­bæri­leg­ar ról­ur.

„Þetta fór alla leið inn í kerfið og það er verið að skoða þetta. Ég veit að það liggur fyrir mjög harðort bréf frá Svíum um að þessu verði breytt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×