Innlent

Vinnuvikan stytt hjá tveimur opinberum stofnunum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Reykjavíkurborg fór í dag af stað með tilraunaverkefni um styttri vinnu viku án launaskerðinga. Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts auk starfsmanna Barnaverndar munu vinna í 35 klukkustundir á viku í stað 40 stunda og mun tiraunin standa yfir í eitt ár.

Alls munu 65 starfsmenn taka þátt í verkefninu en þessir vinnustaðir urðu fyrir valinu því þar er oftar en ekki unnið undir miklu álagi. Skipaður var starfshópur til að útfæra verkefnið og valdi hann sömuleiðis heppilega vinnustaði til tilraunarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Í þjónustumiðstöðinni mun hver vinnudagur styttast um eina klukkustund en hjá Barnavernd lýkur hefðbundinni vinnuviku á hádegi síðasta virka vinnudag hverrar vinnuviku. Starfsmaður á bakvakt mun þá taka við brýnum verkefnum.

Skoðað verður hvaða áhrif styttri vinnuvika hefur á starfsfólk, heilsu þeirra, vellíðan, starfsanda og þjónustu að teknu tilliti til þess að það komi ekki niður á framleiðni, gæðum og hagkvæmni. Með viðhorfskönnunum verður andleg og líkamleg líðan starfsmanna mæld, álag í starfi, starfsánægja, væntingar og samræmi milli vinnu og einkalífs. Þá verður fylgst með málaskrá, fjölda símtala, yfirvinnu starfsmanna, starfsmannaveltu, fjölda vinnustunda, fjarvistum og kostnaði sem felst í því að lengja bakvaktir hjá Barnavernd.

Opinberir starfsmenn á Íslandi vinna lengri vinnuviku en víðast hvar í öðrum Evrópusambandsríkjum. Rannsóknir sýna að langur vinnutími dregur bæði úr framleiðni og starfsánægju.


Tengdar fréttir

Stytting vinnuviku í Reykjavík

Nú um mánaðamótin hefst afar spennandi tilraunaverkefni í Reykjavík um styttingu vinnudags án launaskerðingar. Verkefnið nær til tveggja starfsstaða borgarinnar;




Fleiri fréttir

Sjá meira


×