Innlent

Vinnslustöðin bauð sjómönnum samráð

Sveinn Arnarsson skrifar
Bauð Sjómannasambandinu að skoða öll sín gögn. Sjómannasambandið mætti ekki til Eyja.
Bauð Sjómannasambandinu að skoða öll sín gögn. Sjómannasambandið mætti ekki til Eyja. vísir/Hari
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, furðar sig á því að forystumenn Sjómannasambands Íslands ákváðu að taka ekki þátt í að reikna hlut sjómanna sem hlutfall af söluverði afurðar.

Reynt var að byggja á samvinnu við Sjómannasambandið án árangurs.

„Við höfðum verið í allmörg ár með fyrirkomulag þar sem fiskverð til uppsjávarskipa var hlutfall af söluverði afurðar. Þar var allt uppi á borðum og fulltrúar sjómanna og forsvarsmenn þeirra gátu komið hvenær sem var og skoðað sölur og sannreynt útreikninga okkar. Forystumönnum sjómanna var boðið að koma, en þeir mættu aldrei. Í tvígang skoðaði Verðlagsstofa skiptaverðs útreikninga okkar og fann að allt var gert rétt,” segir Sigurgeir Brynjar.

Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands, segir rétt að þeim hafi boðist að koma og skoða gögn. „Við fórum ekki til Vestmannaeyja, það er alveg rétt. Við áttum með þeim fund hins vegar á skrifstofum LÍÚ einu sinni. Hins vegar var aldrei á hreinu hversu djúpt við mættum kafa í bókhaldið og því ákváðum við að taka ekki þessu tilboði þeirra.“

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri SVS
Fréttablaðið sagði frá því í gær að úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hafi úrskurðað að verð sem Vinnslustöðin greiddi fyrir síld til tveggja skipa sinna hafi verið of lágt. Skipin sem um ræðir er Kap VE 5 og Sighvatur Bjarnason VE 81.

Telur Sigurgeir Brynjar úrskurðinn illa rökstuddan og vill fá ítarlegri svör frá úrskurðarnefndinni. Einnig bendir hann á að í haust hafi Vinnslustöðinni verið vísað til úrskurðarnefndar af hálfu sjómannaforystunnar en var vísað frá dómi.

Hann telur Verðlagsstofu skiptaverðs ekki sjá málin í réttu samhengi. „Þegar kaupendur kaupa bestu síldina, sem er norsk-íslensk síld, kaupa þeir hana á hæsta verðinu. Íslensk síld er ekki eins góð, hún hefur ekki sama fituinnihald, ekki sama þéttleika holds og nýtist ekki með sama hætti. Nefndin er eina stofnunin í heiminum sem er þeirrar skoðunar að íslensk síld sé verðmætari en norsk-íslensk síld, án rökstuðnings,” segir Sigurgeir Brynjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×