Lífið

Vill ljúka Polanski-máli

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Polanski hefur haldið til í Evrópu undanfarin ár.
Polanski hefur haldið til í Evrópu undanfarin ár. nordicphotos/getty
Lögfræðingurinn Alan Dershowitz reynir nú að ljúka Roman Polanski-málinu, meira en 35 árum eftir að leikstjórinn var ásakaður um nauðgun.

Dershowitz hefur óskað eftir nýjum réttarhöldum en hann ásakar saksóknara um að hafa gefið rangar upplýsingar þegar reynt var að gera leikstjórann útlægan úr heimalandi sínu Póllandi.

Þá segir hann að hæstaréttardómari hafi ákveðið árið 2009 að halda Polanski í fangelsi með því að fresta stöðugt úrskurði sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×