Vill ljúka aðildaviðræðum á tveimur mánuðum 13. nóvember 2010 09:50 Ögmundur Jónasson vill að það verði kosið um ESB eftir um tvo mánuði.
Ögmundur Jónasson dóms-, mannréttindamála og samgönguráðherra vill ljúka samningaviðræðum Íslands við Evrópusambandið á tveimur mánuðum og bera niðurstöðuna síðan undir þjóðina. Í grein í Morgunblaðinu í dag segir Ögmundur þetta mögulegt með því að hætta því sem hann kallar aðlögunarferli og taka upp raunverulegar viðræður. Ögmundur segir að Vinstri grænir hafi reynt að telja Samfylkinguna á það í stjórnarmyndunarviðræðum að þjóðin greiddi atkvæði um hvort fara skyldi í aðildarviðræður áður en slíkar viðræður hæfust. Samfylkingin hafi ekki fallist á það. Eftir að viðræður Íslands og Evrópusambandsins hófust, hafi komið í ljós að um aðlögun að sambandinu sé að ræða. Endalausir rýnihópar séu að störfum og Evrópusambandið beri í Íslendinga fé til að liðka fyrir í viðræðunum. Íslendingum sé boðið í endalausar kynnisferðir til Brussel með góðum viðgjörningi. Honum sé löngu orðið ljóst að Evrópusambandið vilji Ísland. Ögmundur telur samningaferlið vísvitandi haft langt til að laða Íslendinga til fylgislags við sambandið. Grein Ögmundar birtist skömmu eftir að rúmlega hundrað félags- og stuðningsmenn Vinstri grænna skoruðu á forystu flokksins að fara að stefnu hans í evrópumálum, en í þeim hópi eru margir í pólitísku baklandi Ögmundar, sem telja að núverandi forysta flokksins hafi svikið stefnu hans.
Mest lesið Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Erlent Flugið er líflína milli byggða Grænlands Innlent Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Erlent Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Innlent Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Innlent Fleiri fréttir „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Faðir um brunann á Stuðlum, uppgjör í undirheimum og forsendubrestur Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Bein útsending: Ræðir glæpi gegn náttúrunni Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki „Nú hafi orðið bakslag“ Semja við Ísaksskóla um leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi Þyrlan kölluð út vegna slasaðrar konu Loka hæð vegna myglu á sjúkrahúsinu Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Skipta Kjartani og Mörtu út fyrir nýliðana tvo Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Útilokar oddvitaframboð í borginni Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Setning Arndísar Báru framlengd um ár Grikkinn verður ákærður fyrir manndráp Sjá meira
Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar