Vill jafna stöðu foreldra óháð lögheimili barns Hersir Aron Ólafsson skrifar 24. febrúar 2018 19:54
Dómsmálaráðherra vonast til að geta lagt fram frumvarp sem myndi jafna stöðu svonefndra lögheimilisforeldra annars vegar og umgengnisforeldra hins vegar á næsta ári. Slík lagabreyting gæti skapað meiri sátt og jafnræði á meðal foreldra. Ójöfn staða foreldra sem hafa skilið að skiptum eða deila forsjá barns á milli sín hefur lengi verið gagnrýnd á sama tíma og slíkt fyrirkomulag hefur orðið algengara. Samkvæmt núgildandi lögum getur barn aðeins átt lögheimili á einum stað, en foreldrið sem hefur barnið skráð heima hjá sér á að jafnaði talsvert meiri réttindi í kerfinu en hitt. Þannig á það t.a.m. rétt á barnabótum og hærri námslánum auk þess sem það getur krafið hitt foreldrið um meðlag. Umgengnisforeldrar eiga hins vegar ekki sama rétt jafnvel þó að þeir annist barnið jafn mikið og lögheimilisforeldrið svokallaða.Prófessor veitir ráðgjöf við samningu frumvarpaÞessu vill Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, breyta. Hún hefur ráðið Hrefnu Friðriksdóttur, prófessor í fjölskyldu- og sifjarétti við Háskóla Íslands, til að veita ráðgjöf um frumvörp sem myndu jafna stöðu foreldra í þessum efnum. Með samkomulagi á milli foreldra væri þá hægt að skrá barn með jafna búsetu hjá báðum. Barnið hefði þá í reynd lögheimili á tveimur stöðum. Báðir foreldrar hefðu þá rétt á barnabótum og meðlagi eftir atvikum hverju sinni. „Ég held að ef við náum að leiða þetta í lög að þetta geti skapað meiri sátt á meðal foreldra í þessum efnum og jafnræði líka," segir ráðherra. Aðspurð hvers vegna það hafi tekið stjórnvöld svo langan tíma að bæta úr stöðunni útskýrir Sigríður að málið sé afar umfangsmikið. Það falli undir verkskið fjögurra ráðuneyta og kerfisbreytingu þurfi hjá Þjóðskrá. Því þurfi að vanda vel til verka. Hún vonast til þess að geta lagt fram frumvarp til umsagnar þegar í haust. Þá verði hægt að leggja málið fram á vorþingi 2019.
Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira