Innlent

Vill dýralögreglu sem sérhæfir sig í eftirliti

Dýraníð í Svíþjóð Fertugur karlmaður í Svíþjóð var handsamaður af dýralögreglunni þar í landi fyrir að hafa fangað villta fugla og geymt þá í kofa við óviðunandi aðstæður.Nordicphotos/AFP
Dýraníð í Svíþjóð Fertugur karlmaður í Svíþjóð var handsamaður af dýralögreglunni þar í landi fyrir að hafa fangað villta fugla og geymt þá í kofa við óviðunandi aðstæður.Nordicphotos/AFP
„Eftirlit með dýravelferð hér á landi er í mjög lágum gæðaflokki," segir Árni Stefán Árnason, lögfræðingur í dýrarétti. „Málarekstur tekur langan tíma, valdhafar beita ekki inngripum og hagsmunatengsl eru mjög rík."

Árni samdi umsögn um frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fyrir hönd Samtaka lífrænna neytenda. Hann telur að stofna eigi eftirlitsstofnun sem sjái eingöngu um dýravelferð.

„Eftirlitið væri betra í höndum dýralögreglu eins og til dæmis í Svíþjóð og víða í Bandaríkjunum," segir hann. „Sérstakri stofnun sem sérhæfir sig á þessu sviði og er ætíð aðgengileg og með viðbragstíma sem hæfir þegar upp kemst um illa meðferð á dýrum."

Kristinn Hugason, deildarstjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og formaður nefndarinnar sem kom að gerð frumvarpsins árið 2011, segir hugmyndina um dýralögreglu óraunhæfa. „Þetta er absúrd hugmynd í íslenskum veruleika," segir hann. „Ég bendi bara á þann fjárskort sem er fyrir í allri opinberri starfsemi. Þetta yrði allt of kostnaðarsamt og ég vil skora á fólk að taka á þessu með hófstillingu."

Kristinn bendir á að með nýju löggjöfinni verði eftirlitshlutverk Matvælastofnunar bætt og umdæmisfulltrúar ráðnir til stofnunarinnar sem sinni einungis dýravelferðarmálum. Ráðist verði í endurskipulagningu á forðagæslu og búfjáreftirliti og þá verði eftirlitið fært frá sveitarfélögunum yfir til stofnunarinnar. - sv



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×