Lífið

Vill byrja að deita aftur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikkonan Sharon Stone, 56 ára, var í viðtali við Mario Lopez á Extra í gær. Í viðtalinu sagðist hún vera tilbúin til að byrja að deita aftur.

Sagði Sharon að hún hafi einblínt á að ala upp börnin sín þrjú upp síðustu ár en börnin hennar eru fjórtán, níu og átta ára. Nú eru þau orðin það gömul að Sharon treystir sér út á ástarmarkaðinn aftur.

"Börnin mín hafa náð vissum aldri þannig að mér líður vel með að deita. Ég vildi ekki fara á stefnumót þegar þau voru lítil. Hver þarf á fullt af fólki inn og út úr lífi sínu að halda? Nú er ég tilbúin til að deita," sagði Sharon við Mario.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×