Vilja skipalægi við Hörpuna og að tónlistarhúsið verið "terminal“ 15. nóvember 2012 10:05
Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg vilja breyta höfninni við Skúlagötu í skemmtiferðaskipalægi og að Harpan yrði nýtt í í aðkomuhús eða „terminal" fyrir gesti skipanna. Þetta kemur fram í ályktun sem Björn Jón Bragason sendi á fjölmiðla fyrir hönd samtakanna. Þar segir meðal annars: „Íslendingar eiga þó langt í land með að skapa viðunandi aðkomu fyrir skemmtiferðaskipin, en fæst þeirra komast inn á innri höfnina og verða því að leggjast að bryggju í Sundahöfn. Þar er umhverfið ekki sem glæsilegast – gámar og ólykt. Vart er til svo fátækt ríki í Karabíska hafinu að þar sé ekki skemmtiferðaskipalægi alveg við miðbæi viðkomandi höfuðstaða. – Þaðan sem gestir geta gengið í land, litið í söfn, skoðað áhugaverða staði, sótt tónlistarviðburði, litið inn á matsölustaði og verslað." Í ályktuninni segir að slíku sé ekki að heilsa hér á landi, og er fullyrt að gestir skemmtiferðaskipa skilji lítið eftir sig í tekjum hér innanlands, en skemmtiferðaskipin þurfa oftar en ekki að leggjast að bryggju í Sundahöfn. Samtökin, sem er líklega frægust fyrir að vera andvíg lokunum á umferð um Laugaveginn yfir hásumarið, eru með lausnir fyrir þessi vandamál og segja að það væri best ef skipalægi fyrir skemmtiferðaskip yrði útbúið við höfnina Skúlagötu. „Ef skemmtiferðaskipalægi yrði fundinn staður við Skúlagötu mætti hugsa sér að Harpan gæti nýst sem glæsilegt aðkomuhús eða terminal. Þar færi fram tollskoðun og allir gestir af skemmtiferðaskipum gengju þar í gegn. Um leið gæfist færi á að hafa þar tónleika á daginn yfir sumartímann og drýgja þannig tekjur af húsinu. En undanfarið hefur mikill taprekstur tónlistarhússins verið til umræðu," segir Björn í pistli sínum. Ályktunin lýkur svo á þessum orðum: „En hvað sem því líður er mikilvægt fyrir uppbyggingu og framþróun ferðamennsku í Reykjavík að huga alvarlega að nýrri aðkomu skemmtiferðaskipa til borgarinnar – enda gríðarlegar tekjur í húfi. Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg hvetja borgaryfirvöld til að setja þetta brýna hagsmunamál Reykvíkinga á dagskrá." Ályktunin í heild sinni.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira