Vilja endurskoða fjármál konungsfjölskyldunnar Birta Björnsdóttir skrifar 29. maí 2016 12:14 Danska konungsfjölskyldan. Vísir/EPA
Samstaða er meðal danskra stjórnmálaflokka um að taka til endurskoðunar greiðslufyrirkomulag til dönsku konungsfjölskyldunnar. Sitt sýnist þó hverjum um hver útfærslan eigi að vera en meirihluti dönsku þjóðarinnar leggst gegn því að barnabörn drottningarinnar fái greiðslur frá ríkinu. Mikil umræða fer nú fram í Danmörku um hvort fækka eigi aftur í hópi þeirra liðsmanna konungsfjölskyldunnar sem hljóta svokallaða árspeninga frá danska ríkinu. Frá árinu 1849 fram til ársins 1995 voru það einungis krónprinsar og prinsessur, þeirra makar og konungurinn eða drottningin sem fengu árlegar greiðslur frá ríkinu en því var breytt árið 1995 þegar Jóakim, yngri sonur Margrétar Danadrottningar, gifti sig í fyrra skiptið. Þá var reglunum breytt svo Jóakim og hans fjölskylda átti jafnframt rétt á ársgreiðslunum. Fyrir var það einungis eldri bróðir Jóakims, krónprinsinn Friðrik, sem átti rétt á greiðslunum. Nú þykir hins vegar mörgum Dönum nóg um útgjöldin, en þeir bræður Friðrik og Jóakim eiga samtals átta börn. Það elsta, Nikolai sonur Jóakims, verður 18 ára á árinu og ætti þar með samkvæmt núgildandi reglum rétt á ársgreiðslunum. Samkvæmt skoðanakönnun sem Tv2 og Politiken létu gera á dögunum eru 70% dönsku þjóðarinnar því mótfallinn að Nikolaj og önnur börn Jóakims fái árlegar greiðslur frá ríkinu út ævina. Stjórnmálamenn úr nær öllum flokkum hafa lýst yfir vilja til að taka kerfið til endurskoðunar þó sitt sýnist hverjum um hverjir eigi rétt á greiðslum og hverjir ekki. Ársgreiðslurnar eru hugsaðar sem laun fyrir þær skyldur sem konungsfjölskyldan þarf að sinna. Í tilfelli drottningarinnar fara hennar ársgreiðslur jafnframt í að greiða hirðinni laun og viðhalda öllum rekstri sem lýtur að embættinu. Drottningin fær í ár tæpan einn og hálfan milljarð króna í ársgreiðslur og eiginmaður hennar, Hinrik prins, fær 150 milljónir íslenskra króna. Krónprinsinn Friðrik fær í ár tæpar 370 milljónir íslenskra króna og bróðir hans, Jóakim, fær um 66 milljónir íslenskra króna. Mary, eiginkona Friðriks, fær tæpar 40 milljónir í ár, en Marie, seinni eiginkona Jóakims, fær ekkert. Alexandra, fyrrum eiginkona Friðriks, fær hins vegar um 43 milljónir íslenskra króna í ár. Konungsfjölskyldan greiðir ekki tekjuskatt af hinum árlegu greiðslum.
Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira