Lífið

Vildu bara gera þungarokk

Freyr Bjarnason skrifar
Skálmöld leggur upp í mikla tónleikaferð um Evrópu á föstudaginn.
Skálmöld leggur upp í mikla tónleikaferð um Evrópu á föstudaginn.
Þriðja hljóðversplata rokkaranna í Skálmöld, Með vættum, kemur út á föstudaginn.

Fjögur ár eru liðin síðan fyrsta plata Skálmaldar, Baldur, sló í gegn hér á landi. Í millitíðinni hafa komið út tvær plötur, Börn Loka og Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Allar hafa þær náð gullsölu og er salan á bilinu fimm til átta þúsund eintök.

„Þetta gerist allt í þessum íslenska ævintýraheimi,“ segir bassaleikarinn Snæbjörn Ragnarsson um þema platnanna. Baldur fjallaði um víkingahetju og hafði yfir sér ævintýrablæ. Á Börnum Loka var goðafræðin meira áberandi en á plötunni Með vættum eru Ísland, landvættirnir og árstíðirnar í aðalhlutverki.

„Við erum búnir að gera alls konar hluti undanfarið, til dæmis með Sinfóníunni og í Borgarleikhúsinu. Það er búið að vera ógeðslega gaman en kannski ekkert endilega það sem maður sá fyrir sér þegar maður stofnaði hljómsveitina. Við vildum bara gera þungarokk. Það eru engir gestir á nýju plötunni, minna af kórum og meira við að hafa gaman af því að vera bara sex í hljómsveit. Ég held að það heyrist svolítið á plötunni. Við fórum „back to the basics“.“

Hljómsveitin gefur sjálf út plötuna og að sögn Snæbjörns er ástæðan fyrir því margþætt. „Við erum kannski orðnir svolítið meira batterí og viljum svolítið stjórna sjálfir hvað gerist. Þetta er ekki sjálfgefið. Þetta er pínu streð en að sjálfsögðu vonum við að það skili sér þegar upp er staðið.“

Útgáfutónleikar vegna nýju plötunnar verða í Háskólabíói og Hofi á Akureyri um mánaðamótin janúar, febrúar með tilheyrandi tónleikaferð um landið.

Á leið í stóra tónleikaferð

Skálmöld flýgur til útlanda í fyrramálið því sveitin er á leiðinni í stóra tónleikaferð um Evrópu sem hefst á Ítalíu á föstudagskvöld. Henni lýkur einum og hálfum mánuði síðar í Austurríki, 13. desember. Snæbjörn segir aðdáendahópinn erlendis vera smám saman að stækka og tónleikastaðina verða stærri með hverju árinu. „Mamma kenndi manni að ef maður heldur sér að verki gangi hlutirnir betur,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×