Lífið

Vil ekki styggja mömmu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Kristjón er búinn að skrifa nokkrar bækur og stefnir aftur á þá braut síðar. Fjölmiðlabransinn hefur átt hug hans síðustu ár en hann lítur á það spor sem hluta af rithöfundarferlinum.
Kristjón er búinn að skrifa nokkrar bækur og stefnir aftur á þá braut síðar. Fjölmiðlabransinn hefur átt hug hans síðustu ár en hann lítur á það spor sem hluta af rithöfundarferlinum. Vísir/ Anton Brink
„Undanfarið hef ég óspart reynt að sannfæra sjálfan mig um að aldur sé bara tala en eftir því sem nær dregur hinni stóru stund hefur fjarað mjög undan þeirri sannfæringu,“ segir Kristjón Kormákur Guðjónsson, ritstjóri Pressunnar og DV.is, um fertugsafmælið í dag.

Honum finnst erfitt að verða miðaldra – finnur samt engan mun. „Ég er ekki farinn að hækka í sjónvarpinu og heldur ekki kominn með vatnsglas á náttborðið,“ huggar hann sig við og vippar sér í alvarlegri gír.

„Að öllu gamni slepptu þá eigum við að vera þakklát fyrir hvern dag sem við fáum að taka þátt í þessu samkvæmi og njóta stundanna með fjölskyldu og vinum.“

Kristjón býst við að drjúgur tími dagsins fari í að svara símtölum og kveðjum. Hann lýkur miklu lofsorði á samstarfsfólkið en kveðst þó munu beita sér fyrir því að þeir sem segi brandara á hans kostnað innan fyrirtækisins í dag verði umsvifalaust reknir. Þeir sem hrósa honum fyrir unglegt útlit gætu hins vegar átt von á stöðuhækkun síðar á árinu.

Í kvöld er móðir hans, Elísabet Jökulsdóttir, skáld og forsetaframbjóðandi, búin að bjóða honum í mat.

„Það er ekki hægt að skorast undan því þegar tilvonandi forseti boðar mann í heimsókn. Ég vil heldur ekki styggja mömmu ef hún skyldi vinna þessar kosningar svo mér verði nú boðið á Bessastaði reglulega,“ segir Kristjón sem stefnir á að bjóða sínum nánustu í gott partí síðar í vetur.

„Svo treysti ég því að þú veljir unglegustu myndina af mér. Ég hótaði ljósmyndaranum mjög mikið, þú skalt ekki verða hissa þó hann komi dálítið bældur til baka.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×