Innlent

Vigdís segir Einar hafa farið offari

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar, segir að þingforseti hafi farið offari þegar hann bað eigendur American Bar í Austurstræti um að taka niður bandaríska fánanna sem blakti fyrir utan staðinn.

„Ég er búinn að láta mig hafa það að labba inn á þingflokksskrifstofur Framsóknarflokksins í Moggahöllinni undir blaktandi Evrópufána og aldrei datt mér í hug að kvarta yfir því,“ sagði Vigdís um málið þegar hún var gestur í Íslandi í dag í kvöld.

American Bar er á jarðhæð í húsi þar sem Alþingi leigir hæðirnar fyrir ofan undir nefndarsali og skrifstofur þingmanna.

Sjá einnig: Bandaríski fáninn fjarlægður af American Bar



Fáninn hangir enn uppi inni á staðnum.Facebook/American Bar
„Er að gerðarleysið við Austurvöll orðið svona mikið að það þurfi að skipta sér af rekstri fyrirtækja? Ég meina, þetta er bara merki þessa staðar og þeir bara auglýsa sig og sína vöru. Mér finnst þetta svolítið langt seilst, bara út af atvinnufrelsi og svona,“ sagði hún.

Vigdís lá ekki á skoðunum sínum á þessu máli og sagði: „Þetta er gengið of langt og ég bara lýsi því yfir að það er búið að fara offari í þessu máli.“

Fleiri þingmenn hafa lýst svipuðum skoðunum á málinu eftir að sagt var frá því í fréttum. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður og varaformaður Samfylkingarinnar, spurði á Facebook-síðu sinni nú í kvöld hvort við værum ekki orðin full viðkvæm ef bandaríski fáninn utan á veitingastað væri að angra okkur.

„Það er ekki eins og maður fyllist bandarískri þjóðerniskennd sönglandi bandaríska þjóðsönginn. Er þetta merki um að menn hvíli ekki nægjanlega vel í Íslendingnum í sér?“ spurði þingkonan.

Erum við ekki orðin fullviðkvæm ef bandaríski fáninn utan á veitingastað er farinn að angra okkur? Það er ekki eins og...

Posted by Katrín Júlíusdóttir on Friday, April 17, 2015
Forseti Alþingis sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að hann hefði gengið í málið eftir athugasemdir nokkurra þingmanna. „Það voru nokkrir þingmenn sem höfðu samband við mig og fannst þetta frekar óþægileg tilhugsun að þjóðþingið væri í þessari stöðu að þingmenn og gestir þeirra þyrftu að ganga undir erlendan þjóðfána á leið inn á starfsstöð Alþingis,“ sagði Einar. 

„Við brugðumst við og höfðum samband við eigendur hússins sem sömuleiðis brugðust mjög vel við þessu,“ bætti hann svo við.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×